Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. ágúst 2026 10:18 Perez Hilton varð einn stærsti og umdeildasti stjörnubloggarinn í byrjun aldar og varð frægur fyrir andstyggileg uppnefni sín og ýktan persónuleika. EPA Stjörnubloggarinn Perez Hilton var fluttur á sjúkrahús í Miami eftir að hafa skaðað sjálfan sig í beinni á TikTok. Áhyggjufullir fylgjendur Perez hringdu í lögregluna sem mætti á vettvang og náði á endanum til bloggarans. Lögreglan í Miami-Dade-sýslu í Flórída fékk í gær fjölda tilkynninga frá fólki sem hafði áhyggjur af manni „streyma sjálfsskaða í beinni á samfélagsmiðlum“. Hjálp við sjálfsskaða er hægt sækja til heilsugæslu, bráðamóttöku, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Barna og unglingageðdeild í síma 543-4300 Í tilkynningu frá lögregluembættinu sagði að einstaklingurinn, sem var ekki nafngreindur, hefði verið fluttur örugglega á sjúkrahús þar sem hann fengi viðeigandi læknisaðstoð. Samkvæmt lögreglu var maðurinn einn heima meðan hann streymdi frá íbúðinni. Aðgangi Hilton á TikTok var lokað í kjölfarið. Kúpluðu sig út til að forðast stigmögnun Lögregluembættið greindi einnig frá því að eftir að hafa rætt við fólk á vettvangi þá hefðu lögregluþjónarnir ákveðið að „kúpla sig taktískt frá aðstæðum meðan þeir fylgdust með stöðu mála“. „Í mörgum tilvikum þar sem manneskja glímir við mikil geðræn vandamál eða er markvisst að skaða sjálfa sig, leggja lögregluþjónar áherslu á að draga úr spennu með því að skapa tíma, fjarlægð og tækifæri til samskipta,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar. Þá kom fram að þegar öðrum stendur ekki bein ógn af viðkomandi geti verið betra að róa aðstæður til að draga úr líkunum á því sem á ensku kallast „suicide-by-cop“ og minnka skaðann sem átök geta valdið. „Suicide-by-cop“ er bandarískt hugtak sem lýsir því þegar fólk reynir að stytta sér aldur með því að reyna að ögra lögreglunni í von um að hún drepi mann. Höfðu ekki náð í Hilton Umboðsmenn Perez, Dante Rusciolelli og Rebekah Kochan, sendu sameiginlega tilkynningu til Variety um að þau væru meðvituð um fréttirnar sem væru í dreifingu af skjólstæðingi sínum. „Á þessum tímapunkti höfum við ekki náð beinu sambandi við hann þrátt fyrir áframhaldandi tilraunir til að ná í hann,“ sagði í tilkynningunni. Þau væru fyrst og fremst að hugsa um heilsu Perez og öryggi fjölskyldu hans. Hilton með syni sínum árið 2017.EPA „Þangað til við höfum staðfestar upplýsingar ætlum við ekki að velta vöngum eða tjá okkur frekar. Við kunnum að meta áhyggjur allra og óskum eftir því að fólk virði einkalíf hans á þessum tímapunkti.“ Hilton, sem heitir réttu nafni Mario Lavandeira, varð frægur í byrjun aldar fyrir slúðurblaðamennsku sína um stjörnurnar en hann tók upp nafnið Perez Hilton sem stælingu á Paris Hilton, sem var ein stærsta stjarnan í gulu pressunni á þeim tíma. Hilton hefur mikið verið gagnrýndur í gegnum enda einkenndust skrif hans oft af andstyggilegheitum og ónærgætni. Á síðustu árum hefur Hilton beðist afsökunar á fyrri hegðun sinni og reynt að breyta um kúrs með því að milda skrif sín. Á sama tíma hefur hann stofnað til fjölskyldu og á þrjú ættleidd börn. „Eitt af því mörgu sem ég sé eftir er að ég skaðaði svo marga með því að gefa þeim andstyggileg viðurnefni og fyrst og fremst var ég vondur við börn fræga fólksins,“ skrifaði Hilton í sjálfsævisögu sinni, TMI: My Life in Scandal, árið 2020. Bandaríkin Hollywood Geðheilbrigði Tengdar fréttir Perez eignaðist dóttur Bloggarinn Mario Armando Lavandeira Jr., betur þekktur sem Perez Hilton, eignaðist dóttur á mæðradaginn. 13. maí 2015 13:00 Perez Hilton sendir Jóhönnu kveðju Slúðurbloggarinn Perez Hilton óskaði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra til hamingju með að hafa gengið að eiga Jónínu Leósdóttir þegar ný hjúskaparlög tóku gildi á alþjóðlegum baráttudegi samkynhneigðra. 29. júní 2010 06:45 Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira
Lögreglan í Miami-Dade-sýslu í Flórída fékk í gær fjölda tilkynninga frá fólki sem hafði áhyggjur af manni „streyma sjálfsskaða í beinni á samfélagsmiðlum“. Hjálp við sjálfsskaða er hægt sækja til heilsugæslu, bráðamóttöku, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Barna og unglingageðdeild í síma 543-4300 Í tilkynningu frá lögregluembættinu sagði að einstaklingurinn, sem var ekki nafngreindur, hefði verið fluttur örugglega á sjúkrahús þar sem hann fengi viðeigandi læknisaðstoð. Samkvæmt lögreglu var maðurinn einn heima meðan hann streymdi frá íbúðinni. Aðgangi Hilton á TikTok var lokað í kjölfarið. Kúpluðu sig út til að forðast stigmögnun Lögregluembættið greindi einnig frá því að eftir að hafa rætt við fólk á vettvangi þá hefðu lögregluþjónarnir ákveðið að „kúpla sig taktískt frá aðstæðum meðan þeir fylgdust með stöðu mála“. „Í mörgum tilvikum þar sem manneskja glímir við mikil geðræn vandamál eða er markvisst að skaða sjálfa sig, leggja lögregluþjónar áherslu á að draga úr spennu með því að skapa tíma, fjarlægð og tækifæri til samskipta,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar. Þá kom fram að þegar öðrum stendur ekki bein ógn af viðkomandi geti verið betra að róa aðstæður til að draga úr líkunum á því sem á ensku kallast „suicide-by-cop“ og minnka skaðann sem átök geta valdið. „Suicide-by-cop“ er bandarískt hugtak sem lýsir því þegar fólk reynir að stytta sér aldur með því að reyna að ögra lögreglunni í von um að hún drepi mann. Höfðu ekki náð í Hilton Umboðsmenn Perez, Dante Rusciolelli og Rebekah Kochan, sendu sameiginlega tilkynningu til Variety um að þau væru meðvituð um fréttirnar sem væru í dreifingu af skjólstæðingi sínum. „Á þessum tímapunkti höfum við ekki náð beinu sambandi við hann þrátt fyrir áframhaldandi tilraunir til að ná í hann,“ sagði í tilkynningunni. Þau væru fyrst og fremst að hugsa um heilsu Perez og öryggi fjölskyldu hans. Hilton með syni sínum árið 2017.EPA „Þangað til við höfum staðfestar upplýsingar ætlum við ekki að velta vöngum eða tjá okkur frekar. Við kunnum að meta áhyggjur allra og óskum eftir því að fólk virði einkalíf hans á þessum tímapunkti.“ Hilton, sem heitir réttu nafni Mario Lavandeira, varð frægur í byrjun aldar fyrir slúðurblaðamennsku sína um stjörnurnar en hann tók upp nafnið Perez Hilton sem stælingu á Paris Hilton, sem var ein stærsta stjarnan í gulu pressunni á þeim tíma. Hilton hefur mikið verið gagnrýndur í gegnum enda einkenndust skrif hans oft af andstyggilegheitum og ónærgætni. Á síðustu árum hefur Hilton beðist afsökunar á fyrri hegðun sinni og reynt að breyta um kúrs með því að milda skrif sín. Á sama tíma hefur hann stofnað til fjölskyldu og á þrjú ættleidd börn. „Eitt af því mörgu sem ég sé eftir er að ég skaðaði svo marga með því að gefa þeim andstyggileg viðurnefni og fyrst og fremst var ég vondur við börn fræga fólksins,“ skrifaði Hilton í sjálfsævisögu sinni, TMI: My Life in Scandal, árið 2020.
Hjálp við sjálfsskaða er hægt sækja til heilsugæslu, bráðamóttöku, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Barna og unglingageðdeild í síma 543-4300
Bandaríkin Hollywood Geðheilbrigði Tengdar fréttir Perez eignaðist dóttur Bloggarinn Mario Armando Lavandeira Jr., betur þekktur sem Perez Hilton, eignaðist dóttur á mæðradaginn. 13. maí 2015 13:00 Perez Hilton sendir Jóhönnu kveðju Slúðurbloggarinn Perez Hilton óskaði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra til hamingju með að hafa gengið að eiga Jónínu Leósdóttir þegar ný hjúskaparlög tóku gildi á alþjóðlegum baráttudegi samkynhneigðra. 29. júní 2010 06:45 Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira
Perez eignaðist dóttur Bloggarinn Mario Armando Lavandeira Jr., betur þekktur sem Perez Hilton, eignaðist dóttur á mæðradaginn. 13. maí 2015 13:00
Perez Hilton sendir Jóhönnu kveðju Slúðurbloggarinn Perez Hilton óskaði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra til hamingju með að hafa gengið að eiga Jónínu Leósdóttir þegar ný hjúskaparlög tóku gildi á alþjóðlegum baráttudegi samkynhneigðra. 29. júní 2010 06:45