Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Rakel Sveinsdóttir skrifar 10. ágúst 2026 07:03 Hin fjögur fræknu á bakvið LifePass Iceland appið: Valerie Christine, Lucas Bures-Bönström, Victor Guðmundsson læknir og Elvar Páll Sigurðssonfyrrverandi knattspyrnumaður. Vísir/Vilhelm „Ég hef spilað fótbolta frá því að ég var gutti og alltaf verið mjög aktívur. Vildi eftir fótboltann kannski fara í ræktina, skella mér síðan á annan stað í jóga, fara í padel og eins í sund á mismunandi stöðum,“ segir Elvar Páll Sigurðsson, markaðssérfræðingur og fyrrverandi knattspyrnumaður. „
Þetta getur léttilega hlaupið á fleiri tugum þúsunda yfir mánuðinn þegar allt safnast saman.” Sem er kannski ágætis dæmi um það hvers vegna appið LifePass Iceland er orðið til. Því samstarfsaðilar LifePass eru ólíkir aðilar um land allt sem þýðir að notendur LifePass geta með sveigjanlegum hætti stundað sína hreyfingu nánast hvar sem er og hvenær sem er. „Líka ferðamenn sem koma hingað í nokkra daga,“ segir Lucas Bures-Bönström og útskýrir hvernig ferðamenn geta til dæmis keypt sér þriggja eða fimm daga kort hjá LifePass og sótt líkamsrækt, baðlón eða jafnvel golf eftir því hver hugurinn er eða staðsetningin. LifePass Iceland fékk verðlaun fyrir bestu kynninguna á Innovation Week síðastliðið vor. Enda kannski ekki að furða. Því þá stóðu Lucas og Elvar einfaldlega fyrir smá uppistandi á sviðinu, kynntu LifePass og hlutu verðlaun fyrir bestu kynninguna og frá KPMG verðlaun sem áhugaverðasta nýsköpunarfyrirtækið. Sagan er að minnsta kosti mjög skemmtileg og, eins og oft gildir í nýsköpun, mun eldri en fyrirtækið sjálft. Ólík en með sömu sýn Ólíkur og áhugaverður fjögurra manna hópur stendur á bakvið LifePass Iceland. Þekktastur af þeim er Elvar Páll, sem margir muna eftir úr knattspyrnunni í Breiðablik en starfar nú sem markaðsstjóri hjá JBT Marel. Vin hans úr Versló, Victor Guðmundsson lækni, þekkja líka margir en hann er einnig einn stofnenda, nú starfandi læknir í Vestmannaeyjum. Frá Þýskalandi en búsett á Íslandi er síðan Valerie Christine. Hún er frumkvöðull og hefur löngum starfað við fjármögnun fyrirtækja ytra, keypti hús á Íslandi 2014, tók ástfóstri við land og þjóð, svo ekki sé talað um íslenska hestinn, og býr hér nú. Loks er það sá yngsti í hópnum, Lucas. Lucas er frá Þýskalandi og Svíþjóð, bjó áður í Berlín en flutti til Íslands til að koma LifePass á koppinn. „Ég starfaði áður hjá þýsku fyrirtæki sem tengdist sprotafyrirtækjum. Sat því hinum megin við borðið og vann við það að hlusta á viðskiptahugmyndir. Sem sumar hverjar voru frábærar en aðrar kannski síður,“ segir Lucas í léttum tóni. „Á einhverjum tímapunkti áttaði ég mig samt á því að mig langaði frekar að vera þeim megin borðsins að fá tækifæri til þess að byggja eitthvað upp.” Lucas er sonur Valerie. „Okkur mömmu hafði lengi dreymt um að stofna fyrirtæki saman. Sem er bæði fallegt og krefjandi í senn því oft felur það í sér áskorun út af fyrir sig að vinna með sínu næsta fólki,“ segir Lucas og hlær. Í dag eru samstarfsaðilar LifePass ríflega fimmtíu talsins og fer þeim hratt fjölgandi. Þá er athyglisvert að þótt félagið sé ungt og teljist til nýsköpunarfyrirtækis er það þegar farið að sjá einhverjar sölutekjur. Ég held að við séum að ná svona hröðum árangri vegna þess að við vinnum með fyrirtækjunum en ekki gegn þeim. Við viljum fjölga fólki í hreyfingu og einfalda samstarfsaðilum okkar lífið. Við erum ekki að taka viðskiptavini frá þeim heldur færa þeim nýja.“ En hvernig virkar þetta? Það bjuggu álíka margir í póstnúmeri Lucas í Berlín og búa á Íslandi. En nú er ekki aftur snúið: Lucas elskar það verkefni að byggja upp LifePass og segir framtíðina því líklega á Íslandi. LifePass ætlar sér þó landvinninga erlendis í framtíðinni.Vísir/Vilhelm Svona virkar LifePass Við þekkjum það öll hversu tímafrekt það getur verið að þurfa að skutlast út um allan bæ. Bara til að skella sér í einn pilates, golf eða sund. Ímyndað dæmi væri að við viljum fara í heilsurækt á mánudegi, sund daginn eftir og svo í jóga um helgina. Síðan förum við í ferðalag um landið og viljum kannski prófa baðlón eða heilsurækt á nýjum stað. Til þess þyrfti annars mörg mismunandi aðgangskort og það getur verið flókið að finna hvað er í boði. LifePass leysir þetta vandamál: Einn aðgangur – fjölbreytt hreyfing og vellíðan hjá fjölda samstarfsaðila. Ég reyni til dæmis að gera svolítið af öllu. Fer í hot yoga einu sinni eða tvisvar í viku, stundum í hjóla- eða róðratíma en fer í líkamsræktina um fimm sinnum í viku. En annaðhvort verður þetta mjög dýrt eða maður er bundinn við einn stað. Það er einmitt vandamálið sem við viljum leysa.“ Á Íslandi er ótrúlega fjölbreytt flóra í boði og ljóst er af þessum fyrrum Berlínarbúa að honum finnst mikið til koma hversu margir og ólíkir aðilar eru á Íslandi. Að byggja appið upp sem lausn fyrir samstarfsaðilana er lykilatriði hjá LifePass. „Það eru til dæmis frábærar litlar stöðvar sem bjóða upp á jóga eða pilates og kannski að maður vilji kíkja í einn og einn þannig tíma,“ segir Lucas og útskýrir: „Fyrir þessa aðila hefur komið í ljós að LifePass er kærkomin lausn. Því það gefur eigendum færi á að verja sínum tíma í kennslu frekar en markaðssetningu, sölu, innheimtu eða reikningagerð.“ Á endanum snúist LifePass um að mæta þörfum notenda fyrst og fremst. Lucas nefnir dæmi: „Við þekkjum það flest að hreyfingin fer oft sjálf í frí þegar við förum í frí. Við erum kannski dugleg alla daga í okkar daglega lífi en þegar við förum í frí út á land fer hreyfingin forgörðum og oft getur nú verið ansi erfitt að koma sér af stað á ný. Með LifePass getur þú stundað þína hreyfingu á mismunandi stöðum á höfuðborgarsvæðinu en ert líka með tryggt aðgengi að stöðvum úti á landi þegar þú ferð í ferðalag.“ Lucas og Valerie eru mæðgin og Victor og Elvar gamlir félagar úr Versló. Ólíkur hópur sem þó hefur sömu sýn: Að efla lýðheilsu með því að auka aðgengi fólks á hreyfingu, hvar sem er og hvenær sem er. Um það snýst LifePass.Vísir/Vilhelm Teymið og litla Ísland Það var nokkur aðdragandi að því að LifePass Iceland varð til. Því þegar vinskapur þróaðist á milli Victors og Valerie varð þeim oft tíðrætt um hversu mikilvægt það væri að auka aðgengi að hreyfingu sem leið til að efla lýðheilsu. Victor og Elvar þekktust úr Versló og voru því þegar gamlir og góðir vinir og svo sannarlega báðir með þá hugsjón að mikilvægt væri að auka sveigjanleika og aðgengi að hreyfingu. En hvernig var hægt að móta hugmyndina enn betur og hrinda henni í framkvæmd? Þar skipti sköpum að Lucas var til í að flytja til Íslands frá Berlín. „Það búa álíka margir í póstnúmerinu þar sem ég bjó í Berlín og búa á öllu Íslandi,“ segir Lucas hlær. „En ég elska það sem við erum að byggja upp og trúi á verkefnið. Þess vegna get ég með sanni sagt að Ísland geti orðið framtíð mín.“ En hvernig er að tala fyrir samstarfi eða sölu á nýjungum á litla Íslandi, þar sem í raun „allir þekkja alla“? „Þar skiptir sköpum hvað teymið okkar er frábært. Við Elvar smullum til dæmis saman um leið og við hittumst og það var nú bara í afmælisveislu. En án gríns þá er það þannig að þótt ég sé sá eini sem starfi dag frá degi við LifePass er teymisvinnan ótrúlega góð. Það hefur margsannast til dæmis hversu öflugt tengslanet Elvar og Victor hafa hér á Íslandi. Þeirra tengingar hafa hjálpað mjög mikið við að fá inn nýja samstarfsaðila.” Lucas segir tengslanet Elvars og Victors hafa opnað margar dyr, enda báðir nokkuð þekktir. Áhersla er lögð á að LifePass virki sem góð þjónusta fyrir samstarfsaðila, ekkert síður en fyrir fólk á Íslandi eða erlenda ferðamenn.Vísir/Vilhelm Eitt af því sem hefur komið nokkuð skemmtilega á óvart er áhugi ferðamanna og ferðaþjónustuaðila á LifePass. „Það hefur verið áhugavert að upplifa áhuga erlendra ferðamanna á LifePass en þessi viðskiptavinahópur hefur keypt sér LifePass í gegnum aðra ferðaþjónustuaðila sem við förum þá í samstarf við og greiðum til þeirra söluþóknun.“ Sem dæmi nefnir Lucas samstarf við bílaleigur, hótel og aðra aðila í ferðaþjónustunni þar sem viðskiptavinirnir fá ábendingu um LifePass um leið og almenn gögn um bílaleiguna eru afhent eða frágengin. Eins og gengur og gerist í nýsköpun þarf þó að gefa sér tíma til að þróa vöruna og prófa. „Í dag erum við fyrst og fremst að horfa til þróunar á lausninni sjálfri, ekki síst þannig að appið einfaldi sem flest mál fyrir einstaklinga og fyrirtækin,” segir Lucas.
Nýsköpun Heilsa Tengdar fréttir Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Við elskum flest velgengnissögur. Eins og til dæmis það að Marel hafi hér um árið keypt hátæknifyrirtækið Völku; nýsköpunarfyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað. 23. apríl 2026 07:01 Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Ástríðan skín úr augunum. Eldur brennur þegar talað er. Í raun er ekki hægt annað en að smitast af gleðinni. Eldmóðnum. 22. apríl 2026 07:01 Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ „Í fyrsta lagi myndi ég segja fólki að tala um hugmyndina sína við einhvern. Sem oft er erfiðast en mjög gott fyrsta skref. Enda allt annað að byggja eitthvað upp einn og lokaður af,“ segir Edda Konráðsdóttir stofnandi Innovation Week sem nú stendur yfir. 14. maí 2025 07:02 Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Vá hvað það væri nú mikill draumur í dós ef við fengjum alltaf óskipta athygli læknisins þegar við hittum hann, sem væri einbeittur í samtalinu við okkur; að hlusta, nema, greina, útskýra, fræða. 14. janúar 2026 07:00 Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ „Það hafa margir haldið að við værum frá verðlagseftirliti ASÍ!“ segja hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir, stofnendur LifeTrack og skella upp úr. Enda oft hlegið í samtalinu við þau, þótt líka kveði á alvarlegri undirtón. 12. febrúar 2025 07:00 Mest lesið Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Rannsókn: Vinnustaðapartí algengur vettvangur kynferðislegrar áreitni Atvinnulíf Allir sýknaðir í Aurum-málinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Gullslegið klósett Bakkavararbræðra flottast Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Segðu Já í vinnunni og það strax! Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Sjá meira
Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Við elskum flest velgengnissögur. Eins og til dæmis það að Marel hafi hér um árið keypt hátæknifyrirtækið Völku; nýsköpunarfyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað. 23. apríl 2026 07:01
Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Ástríðan skín úr augunum. Eldur brennur þegar talað er. Í raun er ekki hægt annað en að smitast af gleðinni. Eldmóðnum. 22. apríl 2026 07:01
Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ „Í fyrsta lagi myndi ég segja fólki að tala um hugmyndina sína við einhvern. Sem oft er erfiðast en mjög gott fyrsta skref. Enda allt annað að byggja eitthvað upp einn og lokaður af,“ segir Edda Konráðsdóttir stofnandi Innovation Week sem nú stendur yfir. 14. maí 2025 07:02
Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Vá hvað það væri nú mikill draumur í dós ef við fengjum alltaf óskipta athygli læknisins þegar við hittum hann, sem væri einbeittur í samtalinu við okkur; að hlusta, nema, greina, útskýra, fræða. 14. janúar 2026 07:00
Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ „Það hafa margir haldið að við værum frá verðlagseftirliti ASÍ!“ segja hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir, stofnendur LifeTrack og skella upp úr. Enda oft hlegið í samtalinu við þau, þótt líka kveði á alvarlegri undirtón. 12. febrúar 2025 07:00