B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 8. ágúst 2026 12:00 Nú hefur verið boðað að lokaeinkunnir nemenda í grunnskólum verði birtar sem heilar tölur frá 1–10 í stað bókstafa. Markmiðið er að gera námsmatið skýrara, samræmdara og auðskiljanlegra. Gott og vel. En hvað breytist í raun? Það er grundvallarmunur á því að breyta námsmati og breyta birtingu námsmats. Ef kennari metur áfram sömu hæfni nemandans eftir sömu viðmiðum breytist matið ekki þótt B verði að 8. Þá hefur tákninu verið breytt ekki mælingunni sem liggur að baki. Hvað veit 8 sem B vissi ekki? Hvers vegna ætti fólk sjálfkrafa að skilja töluna 8 betur en bókstafinn B? Það er ekkert við 8 sem segir okkur hvað nemandi kann. Við skiljum töluna vegna þess að við höfum lært að túlka tölukvarðann rétt eins og við getum lært hvað A, B og C þýða. Tölur geta vissulega verið kunnuglegri og gefið fleiri þrep. En þar getur líka falist fölsk nákvæmni. Þegar einn nemandi fær 7 og annar 8 virðist nákvæmlega eitt stig skilja á milli þeirra. En er hæfni nemanda mælanleg með slíkri nákvæmni? Ef við getum ekki skýrt með samræmdum hætti hvað greinir 6 frá 7 og 7 frá 8 höfum við ekki gert námsmatið nákvæmara. Við höfum einfaldlega búið til nákvæmari ásýnd á ónákvæmu mati. Vandamálið hefur aldrei verið bókstafurinn Stóra áskorunin er hvort einkunn hafi sambærilega merkingu milli kennara og skóla. Ef sami nemandi getur fengið mismunandi mat eftir því hver metur eða í hvaða skóla hann er leysist ekkert með því að skipta B út fyrir 8. Ósamræmið fær einfaldlega nýtt tákn. Þess vegna skiptir miklu meira máli hvað liggur á bak við töluna. Hvað þarf nemandi að kunna til að fá 8? Hvað greinir 7 frá 8? Og eru kennarar í ólíkum skólum sammála um það? Þarna gæti raunverulega breytingin falist. Ráðuneyti boðar einnig skýrari miðlæg viðmið um þekkingu, leikni og hæfni nemenda. Ef það leiðir til skýrari matsviðmiða og meiri samanburðarhæfni milli skóla eru það raunverulegar umbætur. Það gæti verið stóra breytingin ekki hvort B verði 8. Þegar umbúðirnar verða að fréttinni „Bókstafir út – tölur inn“ er einföld og sýnileg breyting sem passar vel í fyrirsögn. En góð menntastefna verður ekki mæld í því hversu auðvelt er að búa til fyrirsögn um hana. Hin erfiða vinna felst í að tryggja sanngjarnt og faglegt námsmat, skýr viðmið og sameiginlegan skilning kennara á því hvað nemendur eiga að kunna og geta. Hvaða hæfni einstaklingur á að búa yfir. Það er líka ákveðin þversögn að hæfnimiðað námsmat átti að færa áhersluna frá „hvaða einkunn fékkstu?“ yfir í „hvað kanntu og hvað þarftu að læra næst?“ Með aukinni áherslu á tölur er hætta á að einkunnin og samanburðurinn verði aftur að aðalatriði. Sýnið okkur betra námsmat Það er ekkert rangt við tölur og ekkert heilagt við bókstafi. Gæði námsmats ráðast ekki af tákninu heldur því sem liggur að baki. Þess vegna ætti spurningin til ráðherra ekki fyrst og fremst að vera hvort 8 sé betri en B, heldur; hvað verður betra í sjálfu námsmatinu? Verða matsviðmiðin skýrari? Verður minni munur milli kennara og skóla? Fá nemendur og foreldrar betri upplýsingar um hvað barnið kann og hvað það þarf að læra næst? Umbætur í menntun verða ekki til við að skipta um kvarða. Þær verða til þegar kvarðinn mælir það sem skiptir máli og við getum treyst mælingunni. Raunverulega prófið verður hvort 8 á Húsavík þýði það sama og 8 í Reykjavík, á Ísafirði eða Selfossi. Höfundur er kennari og skólastjórnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson Skoðun Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir Skoðun „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir Skoðun Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Framtíð lýðveldisins Íslands Snorri Sturluson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Lok kosninga Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lok kosninga Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir skrifar Skoðun Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson skrifar Skoðun Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem skrifar Skoðun Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Framtíð lýðveldisins Íslands Snorri Sturluson skrifar Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver á að leggja símann frá sér? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun
Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun