Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Jón Þór Stefánsson og Áróra L Davíðsdóttir skrifa 8. ágúst 2026 19:02 Kristrún gerði sér leið á Gleðigönguna í dag. Vísir/Vilhelm Mikið álag var á Strætó á höfuðborgarsvæðinu í dag, enda stefndu margir á miðbæ Reykjavíkur þar sem Gleðigangan fór fram. Í Háaleitishverfinu ók troðfullur strætó án þess að nema staðar og hleypa inn farþegum á stoppistöð, en samkvæmt sjónvarvotti var Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, á meðal þeirra sem komst ekki í vagninn.
Hún mun hafa verið að bíða í strætó ásamt fjölskyldu sinni. Að sögn sjónarvottsins þótti sumum í vagninum fyndið að einn æðsti ráðamaður þjóðarinnar fengi ekki pláss í strætisvagni. Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir sviðsstjóri hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, félagsins sem tók við rekstri strætisvagna og Borgarlínunnar í síðasta mánuði, segir að vegna álags hafi troðfullir vagnar ekki getað stoppað fyrir fólki. Til þess að bregðast við því hafi tilkynningar verið settar í appið og á miðla Strætó. „Við þurfum skoða að grípa til aðgerða á Hinsegin dögum eins og við gerum á Menningarnótt,“ segir Sæunn sem tekur fram að í dag hafi verið keyrt á hefðbundinni helgaráætlun og engum vögnum verið bætt í leiðakerfið. „Ef það er satt að keyrt hafi verið fram hjá Kristrúnu Frostadóttur þá er það mjög leitt, og á sama tíma jákvætt og hvetjandi fyrir ríkisstjórnina og sveitarfélögin að þau sjái að þau eru að stefna í rétta átt að flýta fyrir framkvæmdum borgarlínu og efla almenningssamgöngur yfir höfuð,“ segir Sæunn. „Ég bara treysti því að Kristrún stigi bara beint inn í Innviðaráðuneyti og auki fjármagn til ársins,“ segir hún og hlær.
Strætó Gleðigangan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjavík Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira