Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Jón Þór Stefánsson skrifar 8. ágúst 2026 22:50 Tatíana Kim hefur séð það svart, en komandi uppbygging er sögð vera hennar mesta áskorun til þessa. EPA Tatíana Kim er ríkasta kona Rússlands. Hún starfaði fyrstu fullorðinsárin sem enskukennari, en stofnaði árið 2004, þá 28 ára gömul, fyrirtækið Wildberries, sem lýsa mætti sem rússneska Amazon, og hefur grætt á tá og fingri síðan. Nú er reksturinn sagður í hættu, vegna stríðs Rússlands og Úkraínu.
Ástæðan er sú að Úkraínumenn hafa verið duglegir við að gera loftárásir á vöruhús Wildberries. Samkvæmt umfjöllun New York Times um Tatíönu hafa þeir nú ráðist á minnst 23 starfstöðvar fyrirtækisins síðan um miðjan júlí. Níu starfsmenn hafa látið lífið og ansi mikill varningur brunnið til kaldra kola. Þá er Wildberries sagt hafa, vegna árásanna, hafa misst um einn þriðja af landi sínu sem lagt er undir vöruhús, og tapað varningi sem hleypur á 480 milljarða rúblna, sem jafngildir á núvirði um 720 milljörðum íslenskra króna. Af hverju þessi aðferð? Þessi taktík Úkraínumanna, að herja sérstaklega á þetta eina einkarekna fyrirtæki sem er sagt bera ábyrgð á tíu prósentum allrar smásölu Rússlands, er sögð framkvæmd með það að markmiði að óánægja með stríðið aukist á meðal Rússa, og að það muni setja pressu á Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að binda endi á stríðið. Strókur eftir sprengingu á vöruhús Wildberries, skammt frá Sánkti Pétursborg.EPA Auk þess hefur Wildberries verið að senda vistir til rússneskra hermanna. Úkraínumenn halda því fram að fyrirtækið flytji hernaðargögn áleiðis á vígstöðvarnar, líkt og varahluti í dróna sem notaðir eru í stríðinu. Samkvæmt reglum fyrirtækisins er slíkt bannað. Sjálf hefur Tatíana lýst umræddum hernaði Úkraínumanna sem hryðjuverkaárásum. Hún segir að með þessu sé verið að ráðast á saklaust fólk. Erfið uppbygging framundan Samkvæmt New York Times veltur framtíð Wildberries nú á því hversu lengi þessar árásir munu standa yfir, og hversu vel og fljótt fyrirtækinu muni takast að aðlagast nýjum veruleika. Þá muni samband Tatíönu við rússnesk stjórnvöld skipta máli við enduruppbyggingu félagsins. Önnur áskorun Wildberries er sú, að nú streyma viðskiptavinir þeirra yfir til Ozon, næst stærsta fyrirtækisins á þessum markaði, sem hefur ekki orðið fyrir árásum Úkraínumanna. Tatíana er nú fimmtug, en hún stofnaði Wildberries einungis 28 ára gömul. EPA Lygileg barátta við eiginmanninn Líkt og áður segir stofnaði Tatíana Kim Wildberries þegar hún var ung að árum. Fyrirtækið mun fljótlega hafa orðið mikilvægur hluti af rússneska efnahagnum. Innrás Rússa í Úkraínu hafi þá aukið mikilvægi félagsins enn meira, enda lokuðu margir markaðir vesturlanda á viðskipti við Rússa. Í umfjöllun New York Times segir að núverandi barátta Tatíönu sé hennar erfiðasti bardagi hingað til. Hún hefur þó lent í klandri áður. Árásir á Wildberries eru sagðar 23 talsins síðan um miðjan júlí.EPA Fyrrverandi eiginmaður og barnsfaðir sjö barna hennar, Vladíslav Bakaltjúkk, tók víst mikinn þátt í uppbyggingu Wildberries. En baráttan um fyrirtækið var erfið. Árið 2024 mun hann hafa farið í höfuðstöðvar Wildberries, ásamt hópi vopnaðra Téténa, og úr orðið skotárás þar sem tveir létust og sjö særðust. Í kjölfarið tók Tatíana, sem hafði þá um langa hríð borið eftirnafn eiginmannsins, aftur upp nafn foreldra sinna, Kim. Þau skildu svo ári síðar.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira