Viðskipti innlent

Ráðin fram­kvæmda­stjóri við­skipta­sviðs Ís­land Duty Free

Atli Ísleifsson skrifar
Helga Dís Jakobsdóttir.
Helga Dís Jakobsdóttir.

Helga Dís Jakobsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free.

Í tilkynningu segir að Helga Dís hafi starfað hjá félaginu frá því í febrúar.

„Helga Dís hefur gegnt starfi vöruflokkastjóra snyrtivara og sérvöru hjá Ísland Duty Free undanfarna mánuði og þekkir því starfsemina, teymið og birgja félagsins vel. Áður starfaði hún hjá Samkaupum, fyrst sem þjónustu- og upplifunarstjóri, svo sem markaðsstjóri Nettó, þar sem hún stýrði markaðsmálum og þjónustuupplifun keðjunnar á landsvísu og loks sem vöruflokkastjóri. Þar áður var hún rekstrarstjóri veitingastaðarins Hjá Höllu á Keflavíkurflugvelli og starfaði um árabil hjá Bláa lóninu.

Helga Dís er með meistaragráðu í þjónustustjórnun og BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hún sat í bæjarstjórn Grindavíkurbæjar á árunum 2018 til 2024,“ segir í tilkynningunni. 

Undir viðskiptasvið Ísland Duty Free heyra vörustýring, markaðsmál, aðfangakeðja og birgðastýring. Sviðið gegnir því lykilhlutverki í mótun vöruúrvals og upplifunar viðskiptavina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×