Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Kjartan Kjartansson skrifar 13. ágúst 2026 10:58 Ísraelskir landtökumenn sem lokuðu vegi að heimilum tveggja palestínskra fjölskyldna við Qusra, skrúfuðu fyrir vatn og rufu straum til þeirra á sunnudag. Þeir hafa síðan setið um fjölskyldurnar. Vísir/EPA Ísraelsher sendi liðsauka til þorpsins Qusra á Vesturbakkanum þar sem ísraelskir landtökumenn hafa haldið tveimur palestínskum fjölskyldum í heljargreipum frá því á sunnudag. Bandaríski sendiherrann hefur fordæmt umsátrið.
Fjölskyldurnar tvær búa í útjaðri Qusra suður af borginni Nablus á Vesturbakkanum. Hópur ísraelskra landtökumanna gerði aðsúg að þeim á sunnudag og hefur setið um þær. Þær eru nú án rafmagns og vatns, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Þegar Ísraelsher mætti fyrst á staðinn sáust hermenn biðja bænir með landtökumönnunum. Herinn hefur sagt að þeir verði agaðir fyrir það. Í nótt bárust svo fréttir af því að herinn hefði sent liðsauka á staðinn. Bækistöð landtökumanna er sögð hafa verið eyðilögð. Annað húsanna er í eigu Bandaríkjamanns af palestínskum uppruna. Sá kvartaði til bandaríska sendiráðsins. Í kjölfarið krafðist Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjanna í Jerúsalem, þess að Ísraelar fjarlægðu landtökumennina sem hann lýsti sem „ísraelskum hryðjuverkamönnum“. Ísraelskir landtökumenn hafa kerfisbundið hrakið Palestínumenn af landareignum sínum og lagt hald á þær. Landtökubyggðirnar stríða gegn alþjóðlegum sáttmálum en ísraelsk stjórnvöld hafa þrátt fyrir það stuðlað að útbreiðslu þeirra undanfarið. Yfirlýst markmið landtökumannanna er að hreinsa hernumin svæði á Vesturbakkanum af Palestínumönnum.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Bandaríkin Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira