Viðskipti innlent

„Biðin er dýrust“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Einar Bárðarson er framkvæmdastjóri SVEIT.
Einar Bárðarson er framkvæmdastjóri SVEIT. Vísir/Anton Brink

Dæmi eru um að veitingamenn þurfi að bíða í heilt ár eftir því að geta hafið rekstur vegna deilna við borgina. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) kallar eftir skýrum og hröðum samskiptum.

Í gegnum tíðina hafa fjölmargir veitingamenn stigið fram og lýst erfiðleikum við að hefja rekstur vegna þess langa tíma sem það tekur að fá öll tilskilin leyfi frá yfirvöldum. Dæmi eru um að aðilar á veitingamarkaði þurfi að bíða í marga mánuði eftir því að fá réttu leyfin. Til að mynda hafa Víkingapylsur á Laugavegi þurft að bíða í ár eftir því að fá að opna. 

Framkvæmdastjóri SVEIT segir mikla bið geta gert út af við rekstraraðila.

„Það sem ég er að reyna að leggja áherslu á í málflutningi mínum hvað varðar leyfisveitingar almennt, hvort sem það er frá byggingarfulltrúa, heilbrigðiseftirliti eða öðru stjórnvaldi, er að málsmeðferðin sé skýr, hröð og örugg. Það breytir engu hvort svarið sé nei eða já heldur að svarið berist hratt og örugglega. Biðin er dýrust og það framleiðir enginn neitt í biðinni. Hún er engum til gagns,“ segir Einar. 

Verði eitthvað að fylgja nei-inu

Athugasemdir í bransanum eigi oft rétt á sér og geta varðað brunavarnir, ranga umsókn, heilbrigðiskröfur og fleira. Einar segir hið opinbera hins vegar geta verið mun skýrara.

„Í staðinn fyrir að segja „nei“ að segja „nei, mig vantar þetta“ eða þar fram eftir götunum. Lögin og reglugerðirnar breytast eins og tíðarandinn og þá verður maður að gera kröfu um lágmarks leiðbeiningaskyldu,“ segir Einar.

Samtökin hafi átt í ágætis samtali við heilbrigðiseftirlitið en það verði að hraða ferlinu.

„Við erum ekki að biðja um afslætti eða að það eigi að létta á einhverjum kröfum. Það besta fyrir veitingageirann eru skýrar og ábyrgar kröfur og að allir fari eftir sömu leikreglum. Við erum að óska eftir betri og hraðari málsmeðferð,“ segir Einar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×