Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. ágúst 2026 06:29 Greifinn á sviði ásamt öðrum frambjóðendum. Farage lét ekki sjá sig. AP/Richard Pelham Nigel Farage, leiðtogi breska Umbótaflokksins, fór með sigur af hólmi í aukakosningum í Clacton í gær. Hann hlaut 63,34 prósent atkvæða en næstur á eftir honum var grínistinn Jonathan David Harvey, undir dulnefninu Ruslatunnufés greifi. Greifinn, sem er með ruslatunnuhöfuð, hlaut 26,93 prósent atkvæða.
Boðað var til aukakosninganna eftir að Farage sagði af sér þingmennsku í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um peningagjafir sem hann hefur þegið. Rannsókn var hafin á málinu á þingi og gera má ráð fyrir að hún haldi áfram nú þegar Farage er aftur kominn á þing. Farage hafði stillt kosningunum upp þannig að hann ætlaði að sýna það að hann gæti haft sigurorð af bákninu en vopnin snérust í höndum hans þegar stóru flokkarnir neituðu að taka þátt í sjónarspilinu og tefldu ekki fram kandídötum. Keppninautar Farage í kosningunum í gær voru þannig 34 tiltölulega óþekktir einstaklingar og þeirra á meðal nokkur spéframboð. Tilkynnt var um úrslitin nú í morgunsárið og eins og hefð gerir ráð fyrir stóðu frambjóðendur allir saman í talningasalnum við það tilefni, að Farage undanskildum. Margir höfðu beðið þess með nokkurri eftirvæntingu að sjá hann á sviði með Ruslutunnufési greifa og niðurlægingu hans fullkomnaða. Farage virðist hins vegar hafa séð það fyrir og sagðist ekki myndu verða viðstaddur þar sem yfirvöld hefðu gert honum viðvart um að til stæði að niðurlægja hann á sviðinu. Ruslatunnufés greifi sagði á samfélagsmiðlum nú fyrir stundu að hann hefði farið með sigur í kosningunum... ef horft væri til þeirra sem hefðu haft fyrir því að mæta og hlýða á niðurstöðurnar tilkynntar. Þá vakti hann athygli á því að hann hefði fengið 95 atkvæði í aukakosningunum í Makerfield, þar sem Andy Burnham forsætisráðherra komst inn á þing, en nú þegar hann atti kappi við Farage hefði hann fengið 9.455 atkvæði. „Hvað segir það ykkur? Ja, kannski er það til marks um að Nigel, sem vildi ekki vera niðurlægður, hefur verið það.“ I came first in the Clacton by-election! Of the candidates who bothered to turn up for the results. Here is my victory speech! pic.twitter.com/PBaLO10P2j— Count Binface (@CountBinface) August 14, 2026
Bretland England Kosningar í Bretlandi Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira