Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 17:07 Frá því að Magnion var handtekinn hefur hann verið vistaður í Metrapolitan-fangelsi í Brooklyn í New York-borg. Getty/Barry Williams-Pool Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa ráðið Brian Thompson, forstjóra United Healthcare, af dögum árið 2024, hefur játað sök í málinu á alríkisstigi. Mangione á yfir höfði sér ákærur bæði frá alríkisdómstóli og dómstólum New York-ríkis fyrir meint morð á forstjóra bandaríska tryggingafélagsins.
Réttarhöld yfir Luigi Mangione fyrir alríkisdómstóli hófust í dag. Í aríkismálinu stendur Mangione frammi fyrir ákærum um umsáturseinelti sem leiddi til dauða, eftir að ákæru fyrir manndráp var vísað frá. Í réttarhöldum í dag játaði hann sök á því. Mangione, sem er 28 ára gamall, sat fyrir Thompson fyrir utan hótel í New York í desember þar sem forstjórinn var að halda fjárfestaráðstefnu. Myndband sýndi hann ganga á eftir forstjóranum og skjóta hann nokkrum sinnum í bakið með þrívíddarprentaðri byssu með hljóðdeyfi. Játningin í alríkismálinu getur skipt sköpum fyrir framgang ríkismálsins en bann er við tvöfaldri málsmeðferð samkvæmt lögum New-York-ríkis, segir í umfjöllun CNN. Það er, einstaklingur megi ekki vera sóttur til saka tvisvar fyrir sama brot ef ákærur byggja á sama athæfi. Í gær var greint frá því að hann væri sagður ætla að játa. Í New York-málinu hefur hann verið ákærður fyrir morð og önnur brot. Í báðum málum stendur hann frammi fyrir lífstíðarfangelsi. Lögmenn Magnione gætu því farið fram á að ríkismál New York yrði fellt niður, klárist réttarhöld alríkismálsins á undan réttarhöldum ríkismálsins. „Ég tel líklegra en ekki að ríkismálið falli niður með játningu fyrir alríkisdómstóli,“ er haft eftir Anthony Capozzolo, fyrrverandi saksóknara hjá embætti héraðssaksóknara á Manhattan, í umfjöllun CNN. „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Í réttarsalnum hafi Mangione lesið yfirlýsingu og gefið nákvæma lýsingu á atburðarásinni fyrir skotárásina sem hafi lokið með orðunum „Ég skaut herra Thompson og hann lést.“ Fjölskylda Thompson hafi einnig verið viðstödd réttarhöldin og hafi brostið í grát við játninguna. Í yfirlýsingunni hafi Mangione viðurkennt meðal annars að hafa skipulagt árásina fyrir fram, ferðast á milli ríkja í þeim tilgangi að myrða Thompson og að hafa þrívíddaprentað byssu með hljóðdeyfi til nota við árásina. Dómur verður kveðinn upp þann 18. desember næstkomandi. Þrátt fyrir játninguna á alríkisákærum á Mangione enn yfir höfði sér átta ákærur í New York-ríki, þar á meðal fyrir morð. Áætlað er að ríkisréttarhöldin hefjist 8. september.
Forstjóri UnitedHealthcare myrtur Erlend sakamál Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira