Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. ágúst 2026 17:19 Ferðamennirnir voru verulega óánægðir með veggskreytingar staðarins. Skjáskot Eigendur kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweet við Hafnargötu í Keflavík segja fjóra menn hafa ógnað starfsmanni staðarins og valdið tjóni eftir að hafa séð að á veggnum var kort af Palestínu með vinsælu slagorði. Eigendur staðarins eru Palestínumenn.
Farah Al-Qasem, sem á Lava Sweets ásamt eiginmanni sínum Diyaa Atatri, segir mennina hafa komið inn í verslunina skömmu eftir að hún opnaði í morgun með fangið fullt af ferðatöskum en ekki hafa haft það í hyggju að panta neitt. Kort með þekktu slagorði á veggnum Þess í stað veittu þeir mynd á vegg staðarins mikla athygli og ræddu sín á milli á hebresku sem Farah skilur ekki. Á myndinni var kort af Palestínu eins og hún leit út fyrir stofnun Ísraels árið 1948 og í kring var slagorðið: frá ánni til hafsins verður Palestína frjáls (From the river to the sea [Palestine] will be free). Slagorðið hefur verið vinsælt meðal enskumælandi baráttufólks fyrir málstað Palestínumanna um áratugi. Slagorðið vísar til stofnun palestínsks ríkis sem nær frá Jórdaná og til Miðjarðarhafsins en hefur verið notað á andsemitískan hátt sem ákall um útrýmingu Ísraelsríkis og íbúa þess. Farah segir það þó alls ekki vera skilaboðin sem Lava Sweets vilji senda frá sér með myndinni, heldur séu þau hjónin einfaldlega stoltir Palestínumenn. „Einn úr hópnum kom að starfsmanninum við afgreiðsluborðið og sagði: af hverju eruð þið með þessa mynd hérna? Þið eruð að hvetja til þjóðarmorðs, til ofbeldis og svo framvegis,“ segir Farah. Reyndi að rífa myndina niður Starfsmaðurinn hafi verið hinn rólegasti og ekki svarað öðru en að þetta væri þeirra staður og að ekkert á veggjunum styddi þjóðarmorð eða ofbeldi. Aðeins væri um að ræða landakort af Palestínu. Eftir að hafa fengið þessi svör fór hópurinn af staðnum en ekki fyrr en einn þeirra reyndi að rífa myndina niður af veggnum. Þegar afgreiðslumaðurinn varð var við þetta kallaði hann á manninn sem skildi myndina eftir hangandi fram af veggnum. Farah segir hann hafa valdið tjóni á veggnum við þetta athæfi. „Svo gaf hann einhver ógnandi merki með höndinni og hótaði þannig starfsmanninum okkar,“ segir Farah. Neikvæðum umsögnum rignir inn Í kjölfar atviksins segir Farah að fjöldi neikvæðra umsagna hafi birst um staðinn á Google Maps á skömmum tíma. Staðurinn hafi áður verið með fimm stjörnu einkunn úr um þrjú hundruð umsögnum en falli nú niður í 4,8 stjörnur eftir að átta nýjar einnar stjörnu umsagnir bárust, frá fólki sem hún segir ekki hafa heimsótt staðinn. Hún segir jafnframt að á meðal umsagnanna sé bein hótun frá einum notanda, þar sem fram komi, í lauslegri þýðingu, að enginn eigi skilið lífsviðurværi kyndi viðkomandi undir gyðingaandúð og að sú umsögn sé enn opinberlega sýnileg öllum á Google Maps. Farah segir þetta ekki fyrsta atvikið af þessu tagi. Hún rifjar upp að þegar hjónin ráku matarvagn áður en kaffihúsið opnaði hafi svipaður hópur einnig komið, talað illa til eiginmanns hennar, hótað honum og skilið eftir sig neikvæðar umsagnir á netinu. Snýst um virðingu Farah leggur áherslu á að Lava Sweets bjóði alla gesti velkomna, óháð þjóðerni. Hún nefnir sem dæmi að tveimur vikum áður hafi hópur Ísraela komið á staðinn, hoggið eftir landakortinu, upplýst starfsfólk um þjóðerni sitt og fengið þau svör að þau væru meira en velkomin. Sá hópur hafi síðan pantað kaffi og vöfflur og farið án þess að úr yrði uppákoma. „Þetta snýst allt um virðingu. Við erum núna á Íslandi, í friðsælu og virðingarfullu landi. Maður þarf bara að skilja að maður þarf að skilja allt hitt eftir,“ segir Farah. Því miður hafi hópurinn sem um ræðir ekki sýnt sömu framkomu. Farah segist hafa tilkynnt málið til lögreglu og að hún hafi afhent lögreglu myndbandsupptöku af atvikinu.
Bakarí Reykjanesbær Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira