Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sindri Sverrisson skrifar 19. ágúst 2026 09:31 Nick Kyrgios hefur best náð 13. sæti á heimslistanum í tennis. Getty/Marijan Murat Ástralski tennisspilarinn Nick Kyrgios varð uppvís að kókaínneyslu á tennismóti á Mallorca í júní og hefur verið úrskurðaður í bann. Hann kveðst hafa gert stór mistök og harmar að hafa brugðist ungum aðdáendum með þessum hætti.
Hinn 31 árs gamli Kyrgios, sem hæst hefur náð 13. sæti á heimslistanum, hefur rétt á að áfrýja banninu en hefur ekki gert það, samkvæmt tilkynningu alþjóðlegrar heilindastofnunar tennisíþróttarinnar, ITIA. Bannið hefur gilt frá 4. ágúst eftir að kókaín fannst í prufu frá því á Mallorca Open þann 22. júní. Kyrgios segist hafa gert mikil mistök og vilja axla fulla ábyrgð á þeim. Hann muni næstu fjórar vikur draga sig í hlé og slökkva á öllum samfélagsmiðlum, og einbeita sér að því að komast á beina braut. „Ég ætla ekki að vera með afsakanir en ég vil samt setja í smá samhengi hvernig staðan hefur verið hjá mér. Glíman við meiðsli síðustu ár hefur tekið mikinn toll, bæði andlega og líkamlega. Líkaminn hefur ekki getað gert það sem hugurinn býst við, og það hefur verið erfiðara en ég gat ímyndað mér að sætta sig við að lok ferilsins nálgist,“ skrifaði Kyrgios á Instagram. Kyrgios hefur aðeins spilað fjóra leiki í einliðaleik í ár, eftir glímu við hné- og úlnliðsmeiðsli síðustu ár. Síðast spilaði hann í tvíliðaleik á Wimbledon-mótinu þar sem þeir Alexander Bublik töpuðu í fyrstu umferð. „Ég hef alltaf sagt að ég valdi ekki tennis heldur valdi tennis mig. En það að sleppa takinu af einhverju sem allt mitt líf hefur snúist um er það erfiðasta sem ég hef gert. Stundum hefur mér fundist ég hjálparlaus og aleinn. Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði,“ skrifaði Kyrgios.
Tennis Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sjá meira