„Það eru engin fórnarlömb hér“ Árni Sæberg skrifar 19. ágúst 2026 10:26 Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm Seðlabankastjóri var ómyrkur í máli á kynningarfundi vegna stýrivaxtahækkunar og kallaði eftir ábyrgð af hálfu aðila vinnumarkaðarins. Vildu þeir stýrivaxtalækkun gætu þeir sjálfir gripið til aðgerða, til að mynda með því að semja upp á nýtt og fresta launahækkunum.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu, sátu fyrir svörum á blaðamannafundi að lokinni kynningu á yfirlýsingu peningastefnunefndar og Peningamálum. Fundinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan: Breytt framsýn leiðsögn Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, benti á að talsverður munur er á framsýnu leiðsögn peningastefnunefndar miðað við leiðsögn hennar í síðustu yfirlýsingu. Þá hafi nefndin talað um að hún væri tilbúin til þess að herða taumhaldið enn frekar til þess að ná verðbólgu í markmið. Nú segi hins vegar að nefndinni hefði þótt rétt að hækka vexti til að tryggja nægjanlegt peningalegt aðhald. „Má þá skilja það sem svo, að öðru óbreyttu og að því gefnu að einhver spá rætist, að þið séuð bara orðin sátt með taumhaldið, að toppnum sé að einhverju leyti náð í þessum vaxtaferli? Í framhaldi af því þá finnst mér dálítið áhugavert að þið hafið samt tekið þetta út, af því að vitið þið eitthvað meira um aðstæður á vinnumarkaði heldur en við hin? Af því að í maí að þá töluðuð þið um það að ef að kjarasamningum verður sagt upp, þá ættu allir að vita hvernig þið mynduð bregðast við, að það væri með því að hækka vexti. Eruð þið búin að taka það út af borðinu núna?“ Tvöfaldur skellur Ásgeir sagði rétt að framsýna leiðsögnin væri talsvert breytt frá því síðast. Það væri vegna þess að mæld verðbólga hefði hækkað verulega. „Þetta var tvöfaldur skellur, annars vegar hækkanir á sköttum og opinberri þjónustu sem ýttu verðbólgu upp og síðan Miðausturlönd. Þannig að mæld verðbólga hækkaði og þessi spá gerir ráð fyrir því að hún muni hækka enn meira þegar líður á haustið. Við töldum nauðsynlegt að bregðast við því, meðal annars af því að verðbólguvæntingar hækkuðu. Nú erum við búin að hækka um 75 punkta sem viðbragð. Síðustu tvær vaxtahækkanir hafa gengið mjög vel eftir.“ Óvissuatriðin séu samt sem áður þrjú, vinnumarkaðurinn, ríkisfjármálin og staðan í Miðausturlöndum. Erfitt sé fyrir peningastefnunefndina að sá opinberar stofnanir hækka gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið. „Það er ekki auðvelt fyrir okkur að ætla að ná markmiðinu ef opinberar stofnanir, sem finna ekki fyrir vöxtunum okkar, séu að hækka. Það skiptir líka mjög miklu máli að vinnumarkaðurinn takist á við þessa stöðu.“ „Það eru engin fórnarlömb hér“ Þá sagði Ásgeir að forsvarsmenn vinnumarkaðarins, bæði fulltrúar atvinnurekenda og verkalýðsfélaga, hafi talað um að þá langi í lægri vexti. Í raun langaði alla í lægri vexti og mjög einfalt væri að greiða fyrir lægri vöxtum. „Í fyrsta lagi að eyða þessari óvissu sem er varðandi þessa kjarasamninga. Forsenduákvæðið er líklega ekki að halda. En það liggur fyrir að kaupmáttur hefur aukist miklu meira en gert var ráð fyrir og heldur áfram að aukast. Þannig að það eru engin fórnarlömb hér. Þannig að það sem ég bara segi er að ég auglýsi eftir ábyrgð hjá aðilum vinnumarkaðarins. Ef þeir vilja sjá lægri vexti, þá eru hlutir sem þeir geta gert. Það væri til dæmis hægt að endursemja og fresta launahækkunum eða bara jafnvel bíða með þær. það myndi hjálpa verulega til.“ Þá endurtók hann auglýsingu sína eftir ábyrgð af hálfu aðila vinnumarkaðarins. „Ef hlutirnir fara á annan veg þá auðvitað verðum við bara að bregðast við því. Við sitjum hér í þessu húsi og bregðumst við því sem aðrir aðilar gera.“
Seðlabankinn Verðlag Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Sjá meira