Vaxtahækkunin geti gert illt verra Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 22:08 Jaya Sood yfirhagfræðingur hjá New Economics Foundation Vísir/Sigurjón Breskur hagfræðingur hjá New Economics Foundation gagnrýnir ákvörðun Peningastefnunefndar í dag. Hún telur háa stýrivexti hafa hafa slæm áhrif á efnahag Íslands.
VR og fagfélög boðuðu til fundar í dag þar sem farið var yfir samspil stýrivaxta og verðbólgu. Fyrirlesari á fundinum var Jaya Sood, hagfræðingur hjá bresku samtökunum New Economics Foundation, sem sérhæfa sig í efnahagsmálum. Hún telur stýrivaxtahækkunina í dag hafa verið ranga ákvörðun miðað við núverandi efnahagsástand. Háir vextir skaðlegir fyrir efnahagslífið „Háir vextir, mjög háir vextir, eins og hafa verið á Íslandi undanfarin ár, hafa verið mjög skaðlegir fyrir efnahagslífið. Hagvöxtur hefur verið lítill, lítið er fjárfest og lítið byggt. Það veldur vandamálum í húsnæðisgeiranum og gerir fólki erfiðara fyrir að komast inn á húsnæðismarkaðinn.“ Sood telur að háir stýrivextir skili takmörkuðum árangri þegar verðbólgan stafar af áföllum á framboðshlið hagkerfisins. Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Jayja Soddy yfirhagfræðingur hjá New Economics Foundation.Vísir/Sigurjón „Ég held ekki að þessir háu vextir á Íslandi skili miklum árangri við að takast á við verðbólgu af völdum framboðsskells sem veldur verðhækkunum. Þess vegna held ég að hækkunin hafi verið röng ákvörðun,“ segir Sood. Stjórnvöld þurfi að grípa inn í Ef ytri þættir, á borð við stríðsátök, valda verðbólgu segir Sood stýrivexti ekki endilega bíta á vandanum. Við slíkar aðstæður þurfi stjórnvöld fremur að grípa til markvissra aðgerða. „Til að takast á við vandann er markvisst inngrip stjórnvalda betra í þeim geirum og vöru- og þjónustuflokkum sem verða fyrir innfluttri verðbólgu.“ Háir vextir geti ýtt undir verðbólgu Sood segir vaxtahækkanir jafnvel geta haft öfug áhrif þegar verðbólga er ekki knúin áfram af mikilli eftirspurn. „Vextir sem eru hækkaðir með það að markmiði að takast á við verðbólgu, þegar hún er ekki drifin áfram af eftirspurn, geta sjálfir aukið verðbólguna. Hærri vextir draga úr fjárfestingum og ef fjárfestingar eiga sér ekki stað getur það dregið úr framleiðslu og framboði,“ segir hún.
Seðlabankinn Alþingi Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira