Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Sindri Sverrisson skrifar 21. ágúst 2026 08:00 Armando Coelho er nafn sem handboltaáhugafólk ætti sennilega að leggja á minnið. Porto Portúgalska stórveldið Porto verður með hinn bráðefnilega Armando Coelho í handboltaliði sínu í vetur þrátt fyrir að hann sé aðeins 14 ára gamall. Hann stimplaði sig inn í þéttsetinni Drekahöllinni í æfingaleik í vikunni.
Hjá Porto er hinn 14 ára Coelho meðal annars með íslenska landsliðsmanninn Þorstein Leó Gunnarsson sem liðsfélaga og gætu þeir því hjálpast að við að búa til mörk í vetur. Coelho er miðjumaður og skiljanlega allur mun léttari og lægri en tröllvaxni Mosfellingurinn. Coelho, sem verður 15 ára í næsta mánuði, skoraði í frumraun sinni með aðalliði Porto á þriðjudag, í 39-27 sigri gegn ABC Braga í æfingaleik nú þegar styttist í að nýtt tímabil hefjist. View this post on Instagram A post shared by FC Porto Sports (@fcportosports) „Auðvitað er þetta draumur sem nú er að rætast,“ sagði Coelho í viðtali á Instagram-síðu Porto eftir frumraunina. Coelho á ekki langt að sækja hæfileikana en hann er sonur Eduardo Filipe sem fram til ársins 2023 hafði verið leikjahæsti landsliðsmaður Portúgals og átt metið í 23 ár. Filipe lék 271 landsleik en Fábio Magalhaes tók fram úr honum fyrir þremur árum, samkvæmt frétt A Bola. Coelho er uppalinn hjá Colégio dos Carvalhos en kom árið 2024 til Porto og hefur spilað fyrir yngri lið félagsins og varalið meistaraflokksins. Núna fær hann hins vegar sess í aðalliðshóp Porto sem til að mynda mun spila í Meistaradeild Evrópu í vetur.
Handbolti Mest lesið „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn „Allir orðnir vinir í skóginum“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann Fótbolti Áttaði sig ekki á því að hafa unnið mótið Sport Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Íslenski boltinn Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Körfubolti „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Sjá meira