Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sindri Sverrisson skrifar 21. ágúst 2026 10:00 Jenny Simpson átti frábæran hlaupaferil. Getty/Patrick Smith Bandaríska hlaupakonan og ólympíuverðlaunahafinn Jenny Simpson segir að hún muni aldrei keppa aftur í hlaupi, eftir að hún fór í hjartastopp á hlaupabrautinni í júní.
Hin 39 ára gamla Simpson, sem er fyrrverandi heimsmeistari í 1.500 metra hlaupi, var í miðju hlaupi í Norður-Karólínu þegar hún fór í hjartastopp og hneig niður. Læknum tókst að bjarga lífi Simpson en hún hefur nú verið greind með sjaldgæfan, arfgengan hjartasjúkdóm (ARVC) sem veldur því að próteinin sem venjulega halda hjartavöðvafrumum saman virka ekki sem skyldi. „Hjartað mitt varð fyrir alvarlegum skaða og losti. Lungun áttu líka í erfiðleikum,“ sagði Simpson á Instagram. Hún er þakklát fyrir þann feril sem hún hefur átt. View this post on Instagram A post shared by Jenny Simpson (@trackjenny) „Framtíð mín er ótrúleg gjöf. Hún er vongóð og mun áfram hafa mikinn tilgang. En greiningin þýðir líka að það væri hættulegt fyrir mig að byrja að hlaupa aftur. Þeim kafla er lokið. Sem betur fer er sögu minni ekki lokið,“ sagði Simpson. „Ég er yfirmáta þakklát fyrir þann feril sem ég átti,“ bætti hún við. Simpson vann 1.500 metra hlaupið á HM 2011 og hlaut brons á Ólympíuleikunum í Ríó 2016. Hún vann einnig silfur í 1.500 metra hlaupi á HM 2013 og 2017.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Formúla 1 Mun Conte taka við Manchester United? Sport Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Mun Conte taka við Manchester United? Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Gylfi búinn að vera rifbeinsbrotinn í þrjár vikur Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Sjá meira