Etur kappi við Obama og Reynolds Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. ágúst 2026 15:03 Andri Snær Magnason var tilnefndur til Jackson Wild-verðlauna í flokki bestu þula með Barack Obama og Ryan Reynolds. Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók eftir Andra Snæ Magnason, hefur verið tilnefnd til tveggja verðlauna á Jackson Wild-verðlaunahátíðinni sem hefur verið lýst sem Óskarsverðlaunum náttúrulífsmynda. Andri Snær er tilnefndur í flokki þula og etur þar kappi við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Hollywood-stjörnuna Ryan Reynolds.
Jackson Wild-verðlaunin eru verðlaun sem eru veitt árlega þeim sem hafa þótt skara fram úr í kvikmyndagerð sem snýr að náttúru, vísindum og náttúruvernd. Jackson Wilson-samtökin hófu í ár samstarf með viðburðinum Hollywood Climate Summit þannig í ár er tilnefnt í bæði heimildarmyndaflokki og flokki leikinna mynda. Tilnefningar til verðlaunanna í ár voru kynntar í vikunni en verðlaunahátíðin fer síðan fram 10. nóvember í Los Angeles. Heimildarmyndin Um tímann og vatnið, eða Time and Water á ensku, í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Söru Dosa er tilnefnd í þremur flokkum. Myndin er tilnefnd fyrir bestu handritaskrif, besta þul og í flokknum Pláneta í krísu. Handritshöfundar myndarinnar keppa í fyrstnefnda flokknum meðal annars við heimildarmyndagoðsögnina Werner Herzog og heimildarmynd hans, Ghost Elephants. Andri Snær keppir sem þulur myndarinnar við tvö stór nöfn í flokki bestu þula. Annars vegar Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sem er þula Netflix-heimildarþáttaseríunnar Our Oceand: Indian Ocean og hins vegar við Hollywood-leikarann Ryan Reynolds sem er þulur heimildarmyndarinnar Animal Oddballs: Terrible Kids. „Ég fæ tilnefningu sem þulur myndarinnar en tveir aðrir tilnefndir eru kunnuglegir og báðir með ensku að móðurmáli. Barack Obama og Ryan Reynolds. Ég verð nú að segja að Ragnheiður Steindórs eigi þakkir skildar fyrir raddþjálfun!“ segir Andri Snær um tilnefningu á Facebook. Um tímann og vatnið verður frumsýnd í Háskólabíói þann 27. ágúst næstkomandi og kemur síðan í sýningar hjá Smárabíói og Bíó Paradís.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Bókmenntir Tengdar fréttir Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Heimildarmyndin Time and Water, sem byggir á bókinni Um tímann og vatnið eftir Andra Snæ Magnason, verður heimsfrumsýnd á Sundance-hátíðinni í dag. Kvikmyndagerðarmennirnir fengur óskertan aðgang að myndefni sem fjölskylda Andri hafði tekið frá 1955 til samtímans og fléttu það saman við íslenska náttúru. 27. janúar 2026 10:55 „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Rithöfundurinn Andri Snær Magnason og Hollywood-leikarinn David Duchovny tóku mynd af sér saman á Sundance-hátíðinni. Þeim hefur lengi verið líkt saman og voru valdir tvífarar í Fókus-blaði DV um aldamótin. 26. janúar 2026 14:59 Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira
Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Heimildarmyndin Time and Water, sem byggir á bókinni Um tímann og vatnið eftir Andra Snæ Magnason, verður heimsfrumsýnd á Sundance-hátíðinni í dag. Kvikmyndagerðarmennirnir fengur óskertan aðgang að myndefni sem fjölskylda Andri hafði tekið frá 1955 til samtímans og fléttu það saman við íslenska náttúru. 27. janúar 2026 10:55
„Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Rithöfundurinn Andri Snær Magnason og Hollywood-leikarinn David Duchovny tóku mynd af sér saman á Sundance-hátíðinni. Þeim hefur lengi verið líkt saman og voru valdir tvífarar í Fókus-blaði DV um aldamótin. 26. janúar 2026 14:59