Enski boltinn

Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nobel Mendy fagnar eftir að hafa komið Hull City í 2-0 gegn Manchester United.
Nobel Mendy fagnar eftir að hafa komið Hull City í 2-0 gegn Manchester United. getty/George Wood

Gærdagurinn var góður fyrir nýliðana í ensku úrvalsdeildinni. Hull City vann sinn fyrsta deildarsigur á Manchester United í 52 ár og Ipswich Town sigraði spútniklið síðasta tímabils, Sunderland. Þá fékk Tottenham á baukinn gegn Brentford.

Flestir spá því að Hull muni eiga erfitt uppdráttar í vetur. En nýliðarnir sýndu hvað í þá er spunnið þegar þeir unnu United, 2-0. 

Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Semi Ajayi skoraði það fyrra eftir hornspyrnu og Nobel Mendy það síðara eftir aukaspyrnu.

Klippa: Hull - Man. Utd 2-0

Jack Clarke tryggði Ipswich 2-1 sigur á Sunderland með marki á lokamínútunni. Emersonn kom heimamönnum yfir en Nilson Angulo jafnaði með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu.

Klippa: Ipswich - Sunderland 2-1

Anton Stach skoraði einnig beint úr aukaspyrnu þegar hann skoraði eina mark leiksins þegar Leeds United sótti Nottingham Forest heim. Markið kom þegar tvær mínútur voru til leiksloka.

Klippa: Nottingham Forest - Leeds 0-1

Everton vann 2-0 sigur á Crystal Palace. Kiernan Dewsbury-Hall og Thierno Barry skoruðu mörkin.

Klippa: Everton - Crystal Palace 2-0

Í lokaleik dagsins vann Brentford svo öruggan sigur á Tottenham, 3-0. Keane Lewis-Potter, Vitaly Janelt og Michael Kayode skoruðu mörk Býflugnanna.

Klippa: Brentford - Tottenham 3-0

Mörkin úr leikjum gærdagsins má sjá hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Brentford tók Tottenham í karphúsið

Tottenham sá aldrei til sólar þegar liðið sótti Brentford heim í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Brentford vann 3-0 sigur.

Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes

Everton fer vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en liðið vann 2-0 sigur á Crystal Palace á heimavelli í 1. umferðinni í dag.

Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur

Nýliðar Ipswich Town fögnuðu 2-1 sigri gegn Sunderland í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Sunderland skoraði glæsilegt jöfnunarmark en Jack Clarke tryggði Ipswich stigin þrjú á lokamínútunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×