Reksturinn batnar en hátt eldsneytisverð setur Icelandair þröngar skorður
Skýr merki eru um að undirliggjandi rekstur Icelandair sé að styrkjast, meðal annars vegna hærri fargjalda, betri sætanýtingar og umfangsmikilla hagræðingaraðgerða, að mati hlutabréfagreinanda, sem verðmetur félagið talsvert yfir markaðsgengi. Hátt eldsneytisverð, sterkt gengi krónunnar og kjaradeilur við flugstéttir setja rekstrinum hins vegar áfram þröngar skorður.
Tengdar fréttir
Varar við „alvarlegri stöðu“ sem geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir félagið
Forstjóri Icelandair fer hörðum orðum um „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ flugmanna félagsins síðustu vikur, sem hafa orðið þess valdandi að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða, og segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig. Þá fullyrðir hann að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur.
„Íslenskar hugmyndir“ um laun hafa lítið gildi á erlendum samkeppnismarkaði
Seðlabankastjóri segist hafa „áhyggjur“ af kjaradeilum flugmanna og Icelandair, sérstaklega ef þær leiða til verkfallsaðgerða með tilheyrandi tjóni fyrir allt atvinnulífið, og bendir á að „íslenskar hugmyndir“ um hver launin eigi að vera stangist oft á við raunveruleikann á alþjóðlegum samkeppnismarkaði.