Viðskipti innlent

Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar

Freyja Þórisdóttir skrifar
 Heildarvirði vef- og útvarpsmiðla Sýnar er sagt um 5,2 milljarðar króna.
 Heildarvirði vef- og útvarpsmiðla Sýnar er sagt um 5,2 milljarðar króna. Vísir

Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar.

Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu Sýnar til Kauphallar en Sýn og Ásar, móðurfélag Símans, undirrituðu skilmálaskjal um fyrirhuguð kaup 12. mars síðastliðinn. 

Samkvæmt tilkynningunni er frestur samkvæmt skilmálaskjalinu nú liðinn og samningaviðræðum félaganna þar með lokið. Einkaréttur Ása til samningaviðræðna er jafnframt fallinn niður.

Vefmiðlar og útvarpsstöðvar Sýnar verða því áfram innan félagsins. Í tilkynningunni segir að um sé að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem muni áfram styðja við kjarnastarfsemi Sýnar.

Niðurstaðan hafi ekki áhrif á útgefna afkomuspá Sýnar fyrir árið 2026.

Náðu ekki saman um viðskiptin

Óljóst er hvers vegna viðskiptin gengu ekki eftir en þau voru háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki beggja stjórna.

Í tilkynningu Ása hf. til kauphallar segir að þessi niðurstaða hafi orðið ljós eftir „viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar“ en Sýn segist hafa uppfyllt forsendur skilmálaskjalsins, þar á meðal forsendur fyrir umsömdu kaupverði er lúta að tekjum og rekstrarafkomu fjölmiðlaeiningarinnar.

Rekstrareiningin sem um ræddi inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal.

Vísir er í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum

Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×