Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar 26. ágúst 2026 13:10 Umræðan um aukningu átraskana meðal barna og ungmenna er bæði mikilvæg og óhugnanleg. Börn eru að greinast sífellt yngri og sjónum hefur, skiljanlega, mikið verið beint að samfélagsmiðlum, útlitsdýrkun og stöðugum samanburði. En ég velti fyrir mér hvort við séum að horfa fram hjá öðru sem getur sent börnum og ungmennum alveg jafn sterk skilaboð um líkama og þyngd. Mikil notkun þyngdarstjórnunarlyfja og umræðan sem hefur skapast í kringum þau. Þegar lyf eins og Ozempic og Wegovy verða hluti af daglegu samtali, þegar við sjáum fólk léttast hratt og þegar fullorðið fólk ræðir opinskátt hver sé á lyfjum, hver hafi grennst og hver „ætti kannski bara að fara á lyf“, þá er það líka hluti af því umhverfi sem börnin okkar alast upp í. Ég held því að við megum ekki bara horfa á það sem birtist á skjánum þeirra. Við þurfum líka að horfa á það sem þau heyra inn á heimilum! Samfélagsmiðlar eru án efa hluti af vandanum. En ég tel að mikil notkun þyngdarstjórnunarlyfja og sú mikla áhersla sem nú er á hratt þyngdartap geti líka haft skaðleg áhrif á líkamsímynd og viðhorf til þyngdar, sérstaklega hjá ungum eyrum, sem eru stöðugt að hlusta og læra af okkur. Þess vegna langar mig að spyrja: Hvernig tölum við fullorðna fólkið um líkama og þyngd þegar börnin okkar heyra til? Lyf eins og Ozempic og Wegovy eru orðin hluti af daglegu samtali. Við sjáum fólk léttast hratt, tölum um hver sé kominn á lyf og heyrum jafnvel setningar eins og: „Af hverju fer hún ekki bara á lyf?“ Kannski þurfum við sjálf að sýna ákveðinn aga í þessari umræðu. Því börnin heyra þetta. Þau heyra ekki bara hvað við segjum um aðra. Þau læra um leið hvaða líkamar eru taldir eftirsóknarverðir og hvaða líkamar virðast þurfa að „laga“. Og kannski segja svona setningar meira um okkar eigin þyngdarfordóma en manneskjuna sem við erum að tala um. Fordómar hætta ekki að vera fordómar þótt við pökkum þeim inn í áhyggjur af heilsu. Hvaða skilaboð berast börnunum okkar þegar þau sjá fullorðna léttast hratt með lyfjum og heyra okkur ræða líkama annarra á sama tíma og við segjum þeim að líkamsvirðing, fjölbreytileiki og heilbrigt samband við mat skipti máli! En þetta snýst ekki um að vera á móti lyfjum Þyngdarstjórnunarlyf geta verið gagnleg meðferð þegar þeirra er þörf, en lyfin mega ekki koma í stað fræðslu og skilnings á því sem er að gerast í líkamanum. Við þurfum að læra á líkamann á hverju æviskeiði, skilja breytingar á blóðsykri, næringu, vöðvamassa, svefni og streitu og spyrja okkur: Hvað þarf líkaminn minn frá mér núna? Hvað er að gerast með blóðsykurinn minn? Fæ ég næga næringu og prótein? Hvernig vernda ég vöðvamassann? Hvað með svefn, streitu og hreyfingu? Dæmi sem sat í mér Ég fékk nýlega konu til mín í ráðgjöf sem hafði verið sett á þyngdarstjórnunarlyfi. Hún hafði lést töluvert en upplifði svo mikið lystarleysi og ógleði í kringum sprautudagana að hún átti erfitt með að borða eðlilega með börnunum sínum og fjölskyldu. Hún leitaði til mín vegna þess að hún hafði sjálf áhyggjur af næringarástandi sínu og mögulegu tapi á vöðvamassa. En það sem sat mest í mér var þetta: Hún vildi alls ekki hætta á lyfinu vegna þess að hún var hrædd um að fitna aftur. Þarna fannst mér ástæða til að staldra við. Ef óttinn við að þyngjast vegur orðið þyngra en áhyggjur af næringu, líðan og vöðvamassa, er þá nóg að segja að meðferðin hafi „virkað“ vegna þess að talan á vigtinni fór niður? Hvað lærði einstaklingurinn um líkama sinn á leiðinni? Hvernig er sambandið við mat? Og hvað gerist ef eða þegar lyfjameðferðinni lýkur? Þarna finnst mér heilbrigðiskerfið líka bera ábyrgð. Lyfið eitt og sér kennir okkur ekki að næra okkur vel, vernda vöðvamassann, skilja blóðsykurinn eða takast á við breytingar á líkamanum. Ég þarf líka að horfa í eigin barm Ég starfa sjálf við fræðslu og ráðgjöf um blóðsykursstjórnun, næringu og heilsu og get því ekki skrifað þetta án þess að horfa líka á mína eigin ábyrgð. Við sem störfum á þessu sviði erum ekkert undanþegin. Fyrir mér snýst ráðgjöf um að hjálpa fólki að skilja eigin líkama og fá verkfæri til að hugsa vel um hann. Þyngdin getur vissulega breyst í því ferli, en talan á vigtinni getur ekki verið eini mælikvarðinn á árangur. Og þegar ég hef talað um megrunarmenningu á ég ekki við alla umræðu um þyngd eða efnaskiptaheilsu. Ég á við þá hugmynd að grennri líkami sé sjálfkrafa betri eða heilbrigðari og að þyngdartap verði markmið í sjálfu sér án þess að við horfum á næringu, styrk, líðan og sambandið við mat. Við sem störfum við heilsuráðgjöf þurfum líka að vera meðvituð um okkar eigin orð. Heilsuefling á að auka skilning okkar á líkamanum ALLS ekki óttann við að búa í honum. Og þá kem ég aftur að börnunum okkar. Samfélagsmiðlar hafa áhrif. En samfélagsmiðlar eru ekki einir í herberginu. Börnin heyra hvernig við tölum um eigin líkama og líkama annarra. Þau heyra þegar við hrósum einhverjum fyrir að hafa grennst án þess að vita hvað liggur þar að baki. Þau heyra þegar við veltum fyrir okkur hvers vegna einhver „grennist ekki“ eða „fari ekki bara á lyf“. Og þau sjá þegar við fullorðna fólkið óttumst nokkur kíló á eigin líkama á sama tíma og við segjum þeim að elska sinn. Þess vegna þurfum við kannski öll að horfa aðeins í eigin barm, foreldrar, heilbrigðisstarfsfólk og við sem störfum við heilsuráðgjöf. Hvaða skilaboð sendum við börnunum okkar þegar enginn samfélagsmiðill er í herberginu? Kannski er það ein mikilvægasta spurningin í þessari umræðu. Markmiðið ætti ekki að vera að eltast við ákveðna tölu á vigtinni, heldur að læra að þekkja eigin líkama, skilja hvað nærir hann, hvað hann skortir og hvað hann þarf á hverju æviskeiði. Því raunveruleg heilsa felst ekki í því að berjast stöðugt við líkamann, heldur að læra að hlusta á hann, næra hann og vinna með honum. Og kannski er það einmitt sú fyrirmynd sem börnin okkar þurfa mest á að halda. Höfundur er næringarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfélagsmiðlar Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar