„Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 22:35 Ólafur Ingi, þjálfari Breiðabliks, segir handbremsu vera á liðinu á síðasta þriðjungi vallarins. Vísir / Diego Breiðablik tapaði 0-2 gegn Stjörnunni í 21. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Ólafur Ingi Skúlason, þjálfara Breiðabliks, taldi skortur á trú og sjálfsöryggi eiga sinn þátt í frammistöðu liðsins. „
Þetta er svolítið bara déjà vu frá síðasta leik hjá okkur,“ sagði Ólafur Ingi eftir leikinn. „Við vorum meira með boltann í fyrri hálfleik án þess að skapa okkur nokkurn skapaðan hlut. Við vorum mikið inni á okkar eigin vallarhelming og komumst hvorki lönd né strönd. Við vorum passífir þegar við fundum ógnanir, litlir inni á síðasta þriðjung og lélegar fyrirgjafir. Það vantaði bara allan brodd í okkur á meðan Stjörnumenn voru miklu beinskeyttari fannst mér.“ Það var allt annað að sjá heimamenn sem komu öflugir inn í síðari hálfleik en það gekk þó lítið upp á síðasta þriðjungi hjá liðinu. „Heilt yfir fínasti síðari hálfleikur. En aftur erum við að grafa okkur holu sem er bara erfitt að komast upp úr og hérna, og það er áhyggjuefni.“ Ólafi fannst blanda af trú og sjálfsöryggi eiga sinn þátt í frammistöðu liðsins á síðasta þriðjungi vallarins. „Mér finnst kannski blanda af svona trú og hún kemur auðvitað með meira sjálfsöryggi og sjálfstrausti. Það hefur gengið brösuglega hjá okkur að fá stig og frammistöðurnar hafa verið upp og niður, sérstaklega innan leikja. Við höfum átt mjög góða hálfleika og mjög slaka hálfleika og það er svona einhver hálfgerð handbremsa á okkur inn á síðasta þriðjung.“ „Við erum að hvetja menn bara til þess að láta ríða á vaðið og eins og ég segi, við erum bara á þannig stað í deildinni að við höfum í sjálfu sér engu að tapa akkúrat núna. Við þurfum bara að njóta þess að spila fótbolta og bara keyra svolítið á þetta , það eru bara okkar skilaboð. Inni í teigunum þá erum við pínu óöruggir og við þurfum að laga það.“
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Dagskráin: Skiptiborðið, stórleikur í körfunni og Íslendingar í Evrópu Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Sjá meira