Fótbolti

Albert lánaður til Lazio

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Albert Guðmundsson er að kveðja Fiorentina.
Albert Guðmundsson er að kveðja Fiorentina. vísir/getty

Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er á förum frá Fiorentina til Rómar.

Fabrizio Romano greinir frá því nú í morgun að Albert hafi verið lánaður til Lazio. Ef Albert stendur sig getur Lazio keypt hann á 12 milljónir evra.

Þessi félagaskipti hafa legið í loftinu í nokkurn tíma og eru loksins að ganga í gegn.

Albert hefur spilað fyrir Fiorentina síðustu tvö ár. Hann skoraði ellefu mörk í 57 leikjum fyrir félagið.

Fiorentina hefur farið illa af stað í ítölsku deildinni. Liðið hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum en Lazio unnið tvo fyrstu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×