Erlent

Kenna Rússum um sprengidrónana á flug­vellinum

Samúel Karl Ólason skrifar
Johann Wadephul, utanríkisráðherra, og Alexander Dobrindt, innanríkisráðherra, héldu blaðamannafund í dag þar sem þeir beindu spjótum sínum að Rússum vegna sjálfsprengidróna sem fundust á flugvellinum í Lepzig.
Johann Wadephul, utanríkisráðherra, og Alexander Dobrindt, innanríkisráðherra, héldu blaðamannafund í dag þar sem þeir beindu spjótum sínum að Rússum vegna sjálfsprengidróna sem fundust á flugvellinum í Lepzig. EPA/FILIP SINGER

Yfirvöld í Þýskalandi hafa sakað Rússa um að bera ábyrgð á sjálfsprengidrónum sem Leipzig/Halle flugvellinum í síðasta mánuði. Um fjölþáttaárás sé að ræða.

Alexander Dobrindt, innanríkisráðherra Þýskalands, sagði frá þessari niðurstöðu yfirvalda á blaðamannafundi í Berlín í dag. Hann sagði árásartilraunina í Leipzig vera eingöngu einn hlekk í langri keðju fjölþáttaógna Rússa í Evrópu að undanförnu.

Þann 4. ágúst sá starfsmaður á umræddum flugvelli dróna nærri úkraínskum fraktflugvélum en flugvöllurinn hefur lengi verið notaður til hergagnaflutninga til Úkraínu. Sprengibúnaður drónans, sem bar öflugt plastsprengiefni, var bilaður og sprakk hann því ekki.

Sjá einnig: Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum

Talið var að flugvél í eigu DHL hefði einnig verið flogið á dróna um svipað leyti. Þá er bent á í frétt DW að í síðustu viku sögðu þýskir fjölmiðlar frá því að þriðji dróninn, sem bar einnig sprengiefni, hefði fundist á flugvellinum.

Rússar hafa verið bendlaðir við fjölmargar fjölþáttaógnir í Evrópu á undanförnum árum og er útlit fyrir að tíðni þeirra hafi aukist á undanförnum mánuðum.

Sjá einnig: Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar

Kaja Kallas, sem stýrir utanríkismálum hjá Evrópusambandinu, sagði fyrr í dag að ljóst væri að Rússar bæru ábyrgð á drónunum. Hún sagði einnig að ögrunum Rússa færi fjölgandi og finna þyrfti leiðir hvernig fæla mætti yfirvöld í Moskvu frá því að auka spennuna enn frekar.

Loka ræðismannsskrifstofu Rússa í Bonn

Á blaðamannafundinum í dag sögðu ráðherrar að rannsókn lögreglu, mynstur fjölþáttaógna og leynilegar upplýsingar sýndu með skýrum hætti að yfirvöld í Rússlandi bæru ábyrgð á drónunum og árásartilrauninni.

Johann Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði í dag að ræðismannsskrifstofu Rússa í Bonn yrði lokað þann 18. september og að samningi sem gerir Rússum kleift að reka menningarmiðstöð í Berlín yrði rift.

Sjá einnig: Fundu rúss­neskt vopna­búr í skógi fyrir utan Ber­lín

Þá stendur einnig til að kalla sendiherra Rússlands í Þýskalandi á teppið og leggja fram formleg mótmæli, samkvæmt frétt Welt, og beita rússneska aðila refsiaðgerðum.

„Skilaboð okkar til ráðamanna Rússlands eru skýr,“ sagði Wadephul.

„Við munum ekki leyfa Rússlandi að sundra eða ógna samheldni samfélags okkar.“

Dobrindt sagði að öryggisstofnanir Þýskalands hefðu um nokkuð skeið fylgst með fjölgun fjölþáttaógna í Þýskalandi og nágrannaríkjum. Þessar ógnir beindust að mikilvægum innviðum, hergagnaframleiðslu og stuðningi við Úkraínumenn.

Hann sagði þessar ógnir ítrekað fela í sér njósnir, skemmdarverk, upplýsingaóreiðu og undirbúning árása.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×