Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sindri Sverrisson skrifar 4. september 2026 07:03 Naomi Osaka vill geta einbeitt sér að tennisnum og að allir virði reglur íþróttarinnar. Áhrifavaldar á borð við Isabellu Lauren hafa fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir hegðun sína á US Open. Samsett/Getty/Instagram Sú ákvörðun mótshaldara Opna bandaríska mótsins í tennis að bjóða enn fleiri áhrifavöldum á mótið hefur bæði kosti og galla. Naomi Osaka biður áhorfendur um að sýna íþróttinni og keppendum virðingu.
Dómarinn neyddist til að gera hlé á leik Osaka við hina rússnesku Anastasiu Zakharova á mánudaginn, vegna of mikils hávaða í áhrifavöldum sem voru að taka upp myndefni á áhorfendasvæði sínu. Bandaríska tennissambandið hefur verið duglegt við að fá áhrifavalda á mótið, til þess að auka umfjöllun og áhorf, og útdeildi í ár um 100 pössum til þeirra eftir að hafa boðið 54 áhrifavöldum í fyrra. En áhrifavaldarnir taka með sér skær hringljós og virðast ekki alltaf gera sér grein fyrir því hvaða hefðir og reglur gilda á tennisleikjum. Influencers are taking over the US Open and this guy has had enough pic.twitter.com/OnEOiwoR68— Barstool Sports (@barstoolsports) September 2, 2026 Til viðbótar við leikinn sem þurfti að stöðva á mánudaginn þá hefur það til að mynda einnig vakið reiði á samfélagsmiðlum þegar einn áhrifavaldanna birti myndaröð af sér af vellinum, þar sem sást að leikur var í fullum gangi í bakgrunninum á meðan að myndirnar voru teknar. Osaka vann leikinn á mánudaginn en tjáði sig svo um áhrifavaldana eftir sigurinn á Katerina Siniakova í þriðju umferð í gær: „Ég held að það sé augljóst að ef þú kemur á íþróttaviðburð þá verður þú að virða íþróttina. Mér finnst það vera almenn kurteisi að lesa sér til um íþróttina, sérstaklega siðareglurnar,“ sagði Osaka. How influencers are killing the US Open and turning it into a 'zoo': Angry top stars hit out at 'disrespectful' and noisy content creators disrupting matches for pictures https://t.co/UOKbXYsEV6— Daily Mail (@DailyMail) September 3, 2026 „Ég held að það gæti verið gott fyrir fólk að gera tennisíþróttina vinsæla fyrir sinn markhóp, en ég held að það þurfi að stjórna því mun betur, sérstaklega í aðstæðum eins og í fyrstu umferð hjá mér. Á heildina litið held ég að það séu gríðarlega jákvæðir þættir. Maður vill að fólk haldi áfram að stækka íþróttina. Ég held bara að það þurfi að vera á þann hátt að allir þekki reglurnar og siðina,“ sagði Osaka. Hún var ánægð með dómarann í dag sem lagði áherslu á að áhorfendur þyrftu að vera hljóðir. „Ég held að í fyrsta leiknum mínum, ég var ekki alveg að fylgjast vel með því ég einbeiti mér venjulega bara að leiknum og vellinum, en það kom augnablik þar sem fólk var að hrópa og annað, og það heyrðist nokkuð greinilega. Ég held að það hafi líka truflað andstæðing minn,“ sagði Osaka sem næst keppir við hina belgísku Elise Mertens.
Tennis Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Sjá meira