Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Sindri Sverrisson skrifar 3. september 2026 23:00 Diljá Ýr Zomers er á leið í bikarúrslitaleik á sunnudaginn. Getty/Alex Caparros Það verður stór og mögulega söguleg stund á sunnudaginn þegar úrslitaleikur norsku bikarkeppninnar í fótbolta kvenna fer fram. Keppt er um verðlaunabikar sem merktur er Haraldi fimmta Noregskonungi sem lést fyrir viku síðan.
Landsliðskonan Diljá Ýr Zomers og stöllur hennar í Brann mæta Álasundi, sem er með Daníelu Dögg Guðnadóttur í sínum röðum, í bikarúrslitaleiknum á sunnudaginn. Norskir fjölmiðlar segja að fráfall Haraldar konungs muni hafa mikil áhrif á aðdraganda leiksins og leikinn sjálfan. Hefð er fyrir því að meðlimir úr konungsfjölskyldunni séu sérstakir heiðursgestir á bikarúrslitaleiknum en enginn þeirra verður hins vegar viðstaddur að þessu sinni. Sérstök minningarathöfn verður fyrir leik til heiðurs Haraldi og dagskráin öll í kringum leikinn nokkuð lágstemmdari en venjan er á „hátíðisdegi kvennafótboltans“. Til að mynda verða ekki hefðbundin veisluhöld eftir leik. „Það verður róleg samkoma með báðum liðum eftir leikinn,“ segir Sissel Hartley, fagstjóri stefnumótunar og kvennaknattspyrnu hjá norska knattspyrnusambandinu, við TV 2. Vonir standa til þess að áhorfendamet verði slegið á leiknum sem fram fer á Ullevaal-leikvanginum í Osló. Nú þegar hafa 8.000 miðar verið seldir en aðeins tvisvar hefur það gerst að yfir 8.000 áhorendur mæti á bikarúrslitaleik kvenna og það var árin 2006 og 2007. Metið var sett fyrra árið þegar 8.856 manns sáu úrslitaleik Röa og Asker. Síðustu þrjú ár hefur mætingin ekki þótt góð á Ullevaal-leikvanginn eða að meðaltali 3.030 áhorfendur.
Norski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira