Ákærður fyrir að brjóta á börnum Samúel Karl Ólason skrifar 4. september 2026 10:21 Andrew Tate stendur frammi fyrir fjölda ákæra í Bretlandi og í Rúmeníu. EPA/Robert Ghement Saksóknarar í Rúmeníu hafa formlega ákært Andrew Tate fyrir hafa selt ólögráða einstaklinga í mansal, fjárþvætti, kynmök við ólögráða einstakling og fyrir að hafa áhrif á vitni. Tristan bróðir hans hefur einnig verið ákærður fyrir að vera samverkamaður Andrews.
Bræðurnir bjuggu lengi í Rúmeníu og hafa verið til rannsóknar þar um árabil. Þeir voru fyrst ákærðir fyrir mansal í desember 2022. Saksóknarar í Rúmeníu segja að þeir hafi laðað til sín konur með því að ljúga að þeim að þeir vildu eiga í sambandi við þær eða giftast þeim en hafi svo í kjölfarið þvingað þær til að taka upp klámefni. Reuters hefur eftir rúmenskum lögmanni bræðranna að farið verði yfir nýju ákærurnar og þeim svarað. Bræðurnir hafa ávallt neitað sök og gera það enn, samkvæmt lögmanninum. Bræðurnir voru handteknir í Miami í júlí, eftir að yfirvöld í Bretlandi fóru fram á að þeir yrðu framseldir þangað. Ákærurnar gegn hinum umdeilda áhrifavaldi og bróður hans hafa hrannast upp á undanförnum vikum. Í frétt Reuters segir að saksóknarar í Rúmeníu hafi ekki enn ákveðið hvort þeir ætli að reyna að fá Andew og Tristan framselda. Hægt er að rétta yfir þeim þar í landi án þess að þeir séu viðstaddir, samkvæmt rúmenskum lögum. Það gæti þó tekið nokkurn tíma. Margra ára rannsóknir og málaferli Tate og Tristan voru upprunalega handteknir í lok árs 2022, ásamt tveimur konum, og voru þau ákærð fyrir að stýra glæpasamtökum til þess að misnota konur kynferðislega. Í ágúst 2023 voru þeir svo aftur dæmdir í stofufangelsi vegna nýrra ákæra vegna ásakana um mansal á ólögráða einstaklingum, mansal, kynmök með ólögráða einstaklingi, skipulagðri glæpastarfsemi, tilraunir til að hafa áhrif á framburð vitna og peningaþvætti. Í desember 2024 komst áfrýjunardómstóll í Rúmeníu að þeirri niðurstöðu að málaferli gegn bræðrunum í fyrra málinu gætu ekki hafist vegna mistaka sem saksóknarar hefðu gert. Málinu var þó ekki lokað heldur þurfa saksóknarar að breyta ákærum sínum, finna ný sönnunargögn eða gera aðrar breytingar.
Rúmenía Mál Andrew Tate Bretland Bandaríkin Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Sjá meira