Sport

At­vinnu­menn mega snúa aftur í háskólaboltann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn LSU hlaupa hér inn á völlinn. Þeir eiga leik á morgun sem margir munu fylgjast með.
Leikmenn LSU hlaupa hér inn á völlinn. Þeir eiga leik á morgun sem margir munu fylgjast með. vísir/getty

Dómari í Louisiana-fylki í Bandaríkjunum hefur gefið atvinnumönnum í amerískum fótbolta grænt ljós á að snúa aftur í háskólaboltann. Ákvörðun sem er vægast sagt umdeild.

Tveir fyrrum leikmenn Ole Miss háskólans skrifuðu undir atvinnumannasamninga í sumar og reyndu að komast að í NFL-deildinni eru æfingabúðir fóru fram í ágúst.

Þeir eru hættir við NFL-drauminn og vilja frekar spila með LSU-háskólanum í vetur. Það hefur hingað til ekki verið leyft.

Þessir tveir leikmenn eru á meðal 42 íþróttamanna sem hafa farið í mál við NCAA, sem heldur utan um háskólaíþróttir í Bandaríkjunum, og vilja fá rétt til þess að spila háskólabolta í fimm ár en ekki bara fjögur.

Það ríkir í raun stríðástand vegna þessa máls vestanhafs því deildin sem LSU spilar í, SEC, er farin í mál við LSU. Þeirra afstaða er frekar einföld. Fyrrum atvinnumenn mega ekki snúa aftur og spila háskólabolta. Þeir vilja fá dómsúrskurð þess efnis að hægt sé að refsa skólum sem tefla fram fyrrum atvinnumönnum.

Málið er því allt í einum hnút þar sem það eru nokkrar lögsóknir í gangi og ekki sér fyrir endann á þessu umdeilda máli. Leikmennirnir tveir sem um ræðir munu þó væntanlega spila fyrsta leik tímabilsins með LSU á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×