Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Eiður Þór Árnason skrifar 5. september 2026 00:03 Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastjóri Gæðabaksturs, segir stöðuna mjög óvenjulega. Vísir Aðdáendur snúða og kleinuhringja með karamelluglassúr hafa komið að tómum kofanum síðustu vikur. Ástæðan er landlægur skortur á glassúrnum sem er sérframleiddur í Bandaríkjunum fyrir íslenskan markað. Þetta segir Vilhjálmur Þorláksson, stjórnarmaður hjá Landssambandi bakarameistara og framkvæmdastjóri Gæðabaksturs.
Staðan sé bagaleg þar sem snúðar og annað brauðmeti með glassúrnum hafi notið mikilla vinsælda hjá íslenskum neytendum um árabil. Vilhjálmur telur að íslenskir bakarar fari í gegnum tæpan gám af karamelluglassúr á mánuði í venjulegu árferði. Mistök sem gerð voru hjá bandaríska framleiðandanum Dawn Foods leiddu til þess að regluleg sending barst ekki til landsins á réttum tíma, að sögn Vilhjálms. „Það átti að koma gámur fyrir rúmum þremur vikum en honum seinkaði um rétt tæpan mánuð og þeir koma núna tveir í staðinn fyrir einn.“ „Það leysist í næstu viku og þá geta allir tekið gleði sína á ný.“ Búið að fjarlægja óleyfileg efni Einn framleiðandi þjónustar alla bakara landsins og sömuleiðis versla þeir vöruna allir í gegnum heildverslunina Danól, að sögn Vilhjálms. „Þetta er bara besta varan og Íslendingum líkar þetta best.“ Hann man ekki eftir því að annað eins hafi gerst þar sem yfirleitt hafi verið nóg til hjá Danól. Það geta ekki allir verið snúður.Getty/Manuela Luisa Meusburger „Þegar framleiðandi klikkar svona þá er það vont.“ Það taki sinn tíma fyrir sendinguna að skila sér sjóleiðis til landsins. Vilhjálmur segir að umræddur glassúr hafi upphaflega verið þróaður fyrir bandarískan markað en svo hafi þurft að fjarlægja litarefni sem eru leyfð í Bandaríkjunum en bönnuð í matvælum seldum innan Evrópska efnahagssvæðisins. „Þetta er ekki lagervara hjá framleiðandanum. Þetta er bara sérlagað.“ Hefur þú heyrt í öðrum bökurum? Er þetta erfitt ástand? „Já, það eru allir mjög svekktir náttúrulega og þetta er agalega bagalegt fyrir alla. Það er ótrúlegt að þetta gerist svona,“ segir Vilhjálmur og hlær. Vilhjálmur telur að staðan komi ekki upp aftur. Gripið til ráðstafana Vilhjálmur telur ólíklegt að íslenskir bakarar hugsi sig tvisvar um eftir þetta og dreifi áhættunni til að tryggja fæðuöryggi Íslendinga. „Ég held að framleiðandinn og svo heildsalinn komi til með að sjá um það. Svo auðvitað komum við bakarar til með að birgja okkur betur upp. Þetta er frekar óeðlilegt,“ bætir hann við. Birgðirnar hjá Gæðabakstri hafi verið í lágmarki þegar í ljós kom að næstu sendingu seinkaði. „Þetta bara getur gerst, sem er mjög slæmt.“ Vilja ekki gera sinn eigin glassúr Aðspurður hvort íslensk fyrirtæki geti ekki gert sinn eigin glassúr segir Vilhjálmur að það hafi vissulega verið skoðað. „Það er búið að skoða það alveg og margir búnir að reyna að flytja inn eitthvað svona sambærilegt og þetta er bara það sem fólki líkar. Við erum ekki að koma inn á markaðinn með eitthvað sem fólki líkar ekki. Það borgar sig ekki.“ Hann hafi verið upplýstur um það að gripið verði til ráðstafana til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur og meiri birgðir verði í framhaldinu geymdar á lager hjá heildsalanum. Þjóðaröryggisráð þarf ekki að taka þetta fyrir á næsta fundi? „Nei, þetta er leyst. Það er bara svoleiðis.“
Bakarí Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira