Formúla 1

Enn ein von­brigðin fyrir Hadjar

Andri Broddason skrifar
Meiðsli Isack Hadjar virðast ætla að dragast á langinn.
Meiðsli Isack Hadjar virðast ætla að dragast á langinn. Bryn Lennon/Getty Images

Vonbrigðin halda áfram fyrir Red Bull-ökumanninn Isack Hadjar en hann mun missa af spænska kappakstrinum sem fer fram um helgina. Hann hefur ekki enn jafnað sig í úlnliðnum þar sem hann meiddist í ágúst.

Red Bull hefur staðfest að Isack Hadjar muni ekki keyra þegar spænski kappaksturinn fer í fyrsta sinn fram á glænýrri kappakstursbraut í Madrid. Þetta er þriðja keppnin sem hann missir af en hann hefur einnig verið fjarverandi í bæði ítalska kappakstrinum og hollenska kappakstrinum.

Hadjar var á boxæfingu í sumarfríinu sínu og endaði á að bráka úlnliðinn sinn en læknateymi Red Bull gerði ráð fyrir að Hadjar væri fljótur að jafna sig. Meiðslin virðast ætla að taka lengri tíma fyrir Hadjar að jafna sig en búist var við og á meðan hann er meiddur hefur Liam Lawson keyrt bílinn hans hjá Red Bull.

Yuki Tsunoda, fyrrum ökumaður Red Bull, hefur því komið í RB-liðið og keyrt bílinn hans Liam Lawson á meðan hann er hjá Red Bull. Tsunoda hefur gengið þokkalega í endurkomunni og náði síðasta stigasætinu í ítalska kappakstrinum.

Hann er því með fleiri stig en þrír ökumenn sem hafa tekið þátt í öllum keppnum tímabilsins. Lance Stroll hefur ekki enn fengið stig með Aston Martin og nýliðarnir í Formúlu 1, Cadillac, sem er með ökumennina Valtteri Bottas og Sergio Perez, hafa ekki enn fengið stig.

Gengi Liam Lawson hjá Red Bull hefur verið sveiflukenndara þar sem hann hefur sýnt góða frammistöðu en einnig verið óheppinn. Hann byrjaði ítalska kappaksturinn á þjónustusvæðinu eftir að hafa tekið vélarrefsingu eftir vonbrigðar tímatökur. Hann lenti í samstuði við Nico Hulkenberg, ökumann Audi, snemma í keppninni og skemmdist bíllinn við það. Hann endaði því keppnina fjórtándi á meðan liðfélagi hans, Max Verstappen, var á verðlaunapalli.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×