Viðskipti erlent

Opin­bera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verð­hækkanir

Samúel Karl Ólason skrifar
iPhone Duo fyrsti langlokusími Apple.
iPhone Duo fyrsti langlokusími Apple. AP/Jeff Chiu

Forsvarsmenn Apple hafa opinberað fyrsta samanbrjótanlega síma fyrirtækisins. Hann heitir iPhone Duo og verður stærsti iPhone fyrirtækisins hingað til. Auk þess var nýr forstjóri sýndur til leiks á nýrri kynningu tæknirisans. Þar voru verðhækkanir einnig boðaðar.

Duo er með 7,6 tommu skjá þegar hann er opinn en á framhlið hans er svo minni 5,4 tommu skjár. Hlutföll símans eru ekki í takt við aðra samanbrjótanlega síma eins og Fold-síma Samsung en hönnuðir símans segjast innblásnir af spjaldtölvum fyrirtækisins.

„Þetta er iPhone ólíkur öðrum iPhoneum,“ segir um símann á vef Apple.

Þá býr Duo yfir tveimur 48 megapixla aðalmyndavélum, auk einnar 12 megapixla myndavél og annarrar smærri myndavélar undir skjánum, fyrir myndbandssímtöl. 

Notendur eiga að geta horft á myndbönd á stærri skjá hans í 31 klukkustund, áður en hann verður rafmagnslaus.

Í Bandaríkjunum á ódýrasta týpa símans (256 GB) að kosta 1.999 dali , sem samsvarar 241 þúsund krónum. Síminn mun væntanlega kosta mun meira en það hér á landi.

Samanbrjótanlegir símar hafa hingað til ekki orðið móðins en Samsung opinberaði þann fyrsta árið 2019. Greiningarfyrirtækið Counterpoint gaf nýverið út skýrslu þar sem fram kemur að líklega muni sá áfangi nást á þessu ári að hundrað milljón samanbrjótanlegir símar hafi verið seldir frá því sá fyrsti leit dagsins ljós.

Í skýrslunni kemur einnig fram að þessir símar eru einungis tvö prósent af heildarmarkaði snjallsíma en búist er við því að sala þeirra muni aukast um 37 prósent á næsta ári. Á það að miklu leyti að vera vegna iPhone Duo.

Cook fylgdist með nýja forstjóranum

Þetta var fyrsta vörukynning Johns Ternus, síðan hann tók við sem forstjóri Apple af Tim Cook. Ráðning hans var opinberuð fyrr í mánuðinum en hann hafði áður unnið lengi hjá Apple.

Sjá einnig: Apple fær nýjan forstjóra

Ternus gekk skælbrosandi á svið á meðan Tim Cook, fyrrverandi forstjóri og núverandi stjórnarformaður, sat fremst í salnum. Ternus byrjaði á því að segja að starfsmenn Apple hefðu unnið hörðum höndum að undanförnu og sagðist hann sannfærður um að fólki myndi lítast vel á hvað hefði komið úr þeirri vinnu.

Þegar kemur að verðhækkunum var opinberað í kvöld að Pro og Pro Max-útgáfur iPhone síma munu hækka um hundrað dali í verði, borið saman við síðustu kynslóð. Samkvæmt Wall Street Journal er það minni hækkun en greinendur höfðu búist við.

Íhlutir í allskonar tækni- og tölvubúnað hafa hækkað mikið í verði að undanförnu. Það má að miklu leyti rekja til gífurlegrar eftirspurnar gervigreindarfyrirtækja eftir tölvuflögum, minni og slíku.

Auk þess að kynna Duo var iPhone 18 einnig kynntur til leiks, ný heyrnartól og ný snjallúr.

Myndbönd frá kynningunni má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×