5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar 10. september 2026 15:02 Þessi ríkisstjórn, sem tók við völdum í lok árs 2024, hefur til þessa ekki sýnt nokkuð aðhald í ríkisfjármálum. Hún hefur með öðrum orðum ekki lagt sín lóð á vogarskálarnar í baráttuna við verðbólguna og í átt að lækkun vaxta. Þvert á móti. Ríkisstjórnin hefur bætt í útgjöldin sí og æ. Halli á rekstri ríkissjóðs varð meiri árið 2025 en fjárlögin sem síðasta ríkisstjórn samþykkti fyrir kosningar gerðu ráð fyrir. Í ár stefnir í að hallinn verði meira en tvisvar sinnum meiri en fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar gerðu ráð fyrir – hátt í 68 milljarðar í mínus í stað 28 milljarða. Voru forsendur frumvarpsins kannski allt of bjartsýnar? En nú á aldeilis að girða sig í brók og skila 5 milljarða afgangi. Hvers vegna ríkisstjórnin sem ætlaði að gera það að sínu fyrsta verki að „ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins“ sá sér ekki fært um að gera þetta fyrr en nú, á þriðja starfsári sínu, er spurning sem rétt er að velta fyrir sér. Kostnaðurinn á þessum seinagangi ríkisstjórnarinnar hefur lent á heimilunum í formi verð- og vaxtahækkana. Ríkisstjórnin hefur ekki aðeins slegið slöku við og eftirlátið Seðlabankanum að gera meira í baráttunni heldur einnig hækkað skatta og gjöld með tilheyrandi áhrifum á verðlag í landinu. Ríkisstjórnin heldur raunar ótrauð áfram á þeirri braut. Í fyrra gagnrýndum við 3,7% hækkun krónutölugjalda og töldum skynsamlegra að miða við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Nú er enn á ný miðað við verðbólguspá, en hækkunin umtalsvert meiri eða 5,2% hækkun þessara gjalda. Og eru þá ónefndar aðrar hækkanir sem boðaðar eru í fjárlögum fyrir árið 2027. Forsendur kjarasamninga eru brostnar. Verðbólga er meiri en vonast var til, meðal annars vegna aðgerða, og aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar. Svar ríkisstjórnarinnar er að skella 5,2% hækkun á heimilin – og meira til. Vilhjálmur Birgisson hefur réttilega bent á að launafólk hafa með síðustu kjarasamningum rutt brautina árið 2024 með hófstilltum samningum í þeirri trú að ríki, sveitarfélög og atvinnulíf tækju öll þátt í að ná niður verðbólgu og stuðla að stöðugleika. Nú upplifir verkalýðshreyfingin að ríkið hafi brugðist. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að beita sér fyrir ró og ábyrgð á vinnumarkaði þegar þetta eru skilaboðin sem hún sendir inn á þann vettvang? Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bryndís Haraldsdóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar