Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar 10. september 2026 15:32 Hálfsársuppgjör Seltjarnesbæjar fyrir árið 2026 sýnir svo ekki verður um villst að fjárhagsstaða bæjarins er alvarleg. Rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarfélagsins er neikvæð um rúmlega hálfan milljarð króna eftir fyrstu sex mánuði ársins. Hallinn er þegar orðinn meiri en hann var á öllu árinu 2025. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor skrifaði ég grein undir fyrirsögninni „Fjárhagslegt sjálfstæði Seltjarnarness í hættu“. Þar vakti ég athygli á viðvarandi tapi í rekstri bæjarins, vaxandi skuldum og þeirri þróun sem blasti við í fjármálum sveitarfélagsins. Ég benti meðal annars á að uppsafnað tap frá árinu 2015 næmi rúmlega þremur milljörðum króna og að rekstur bæjarins hefði árum saman verið langt frá þeim markmiðum sem fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir. Ársreikningur ársins 2025 staðfesti þessa þróun. Rekstrarniðurstaðan varð langt frá þeim markmiðum sem sett höfðu verið og halli A-hluta bæjarsjóðs nam 477 milljónum króna, eða rúmlega fjórfalt meiri en ráð hafði verið gert fyrir í fjárhagsáætlun. Ekki voru allir á þessari skoðun. Þáverandi forseti bæjarstjórnar skrifaði svargrein þar sem hann gerði lítið úr áhyggjum mínum og dró í efa mat mitt á stöðunni. Í umræðunni var mikil áhersla lögð á lífeyrisskuldbindingar bæjarins, sem vissulega eru umfangsmiklar, en minna rætt um önnur atriði sem höfðu áhrif á afkomu bæjarins. Á sama tíma hafa innviðir bæjarins víða verið látnir sitja á hakanum. Skortur á reglubundnu viðhaldi hefur leitt til kostnaðarsamra viðgerða sem enn sér ekki fyrir endann á. Þá var ráðist í byggingu nýs leikskóla sem krefst verulegrar lántöku. Slíkar framkvæmdir eru mikilvægar, en þær hafa jafnframt aukið skuldir bæjarins. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar kom nýtt bæjarráð saman til síns fyrsta fundar. Þar komu fram upplýsingar sem sýndu að hallinn var þegar kominn í um 400 milljónir króna eftir fyrstu fjóra mánuði ársins. Það vakti eðlilega athygli í ljósi þess að í kosningabaráttunni höfðu bæjarbúar fengið allt aðra mynd af stöðunni. Sjálfstæðismenn héldu því ítrekað fram að fjárhagur bæjarins væri í góðu lagi og að ekki væri sérstök ástæða til að hafa áhyggjur. Á fyrsta fundi bæjarstjórnar þar sem tekin var ákvörðun um ráðningu bæjarstjóra gerðum við fulltrúar minnihluta bókun þar sem við vöktum athygli á að erfið staða bæjarins kallaði á fagmenntaða manneskju til að takast á við verkefnið. Nú liggja staðreyndirnar fyrir og þær segja aðra sögu. Hálfsársuppgjörið sýnir ekki aðeins verulegan rekstrarhalla heldur einnig versnandi rekstrargetu, neikvætt veltufé frá rekstri í A-hluta, veika lausafjárstöðu og áframhaldandi aukningu skulda og skuldbindinga. Bæjarbúar eiga rétt á skýrum upplýsingum um stöðuna. Fjárhagsvandi af þessari stærðargráðu verður hvorki til né leysist á einni nóttu. Því er mikilvægt að horfast í augu við staðreyndirnar og ræða þær af ábyrgð. Nú þarf að leggja fram skýra og trúverðuga áætlun um hvernig koma eigi fjármálum Seltjarnarness aftur á traustan og sjálfbæran grunn. Fyrsta skrefið er að viðurkenna stöðuna eins og hún er. Tölurnar tala sínu máli. Verkefnin framundan eru krefjandi en ekki óyfirstíganleg. Með ábyrgri fjármálastjórn, skýrri forgangsröðun og hreinskiptinni umræðu er hægt að snúa þróuninni við og tryggja að fjárhagur Seltjarnesbæjar standi á traustum grunni til framtíðar. Höfundur er oddviti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Seltjarnarnes Mest lesið Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar