Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar 10. september 2026 16:15 Mennta- og barnamálaráðherra kynnti niðurstöður nýjustu PISA-könnunarinnar á kynningarfundi þann 8. september. Niðurstöðurnar voru að sögn verri en nokkru sinni fyrr og benda til þess að einungis 56% nemenda hafi grunnhæfni í lesskilningi. Aðrir þættir sem mældir voru komu líka illa út. Á fundinum voru ýmsar aðgerðir boðaðar til að spyrna gegn þróuninni. Ein þeirra felur í sér að nota gervigreind til að þýða námsefni. Í Kastljósviðtali sama dag sagði ráðherrann: „Síðan erum við að fara að taka í okkar þjónustu nýja tækni sem heitir gervigreind. Við getum í rauninni þýtt mörgum sinnum meira af góðum og frábærum námsgögnum erlendis frá. […] Fyrir 455 milljónir í námsgagnaútgáfu getum við sennilega gert jafn mikið eins og fyrir milljarð miðað við þá nýju tækni sem við erum að fara að taka upp hvað það varðar.“ Hér vakna ýmsar spurningar og ég ætla að gera tilraun til að svara einni þeirra: Er gervigreindartækni líkleg til að geta þýtt námsefni fyrir börn svo vel sé? Undanfarin ár hefur verið gerður fjöldi rannsókna á getu gervigreindar til að þýða yfir á íslensku. Þar ber hæst að þýðingar úr ensku á íslensku hafa verið hluti af stærstu rannsókn á almennri þýðingargetu gervigreindarkerfa í heiminum, en hún fer fram ár hvert í tengslum við stóra alþjóðlega vélþýðingaráðstefnu, WMT. Þá eru þýðingar úr fjölda þýðingarkerfa bornar saman við þýðingar þýðanda af holdi og blóði. Aðrir þýðendur meta textana svo blint, án þess að vita hvaðan hver þýðing kemur. Þegar þýtt er á íslensku hefur hingað til alltaf verið talsverður munur á vélunum og manninum, manninum í vil. Og raunar er það svo að nú er munurinn á gervigreindinni og manninum meiri á milli ensku og íslensku en á milli ensku og annarra tungumála sem metin eru. Við megum því búast við að vélþýddir textar séu líklegri til að innihalda þýðingarvillur og líklegri til að vera stirðari og erfiðari í lestri en textar þýddir af fólki. Þegar tilteknir þættir eru skoðaðir í vélrænum þýðingum sjáum við að geta til að þýða sértækan orðaforða á mörgum fagsviðum er slök þegar þýtt er á íslensku. Þetta á líka við um bestu líkönin. Þegar setningagerð í vélþýðingum er skoðuð sérstaklega sjáum við að hún er oft enskuleg og þegar þýðingarvélin þarf að breyta setningagerð til að koma merkingu rétt til skila er hún líklegri til að gera mistök. Þá er ónefnd slagsíða, stundum kölluð bjagi, sem innbyggð er í líkönin og getur haft áhrif þegar fjallað er um minnihlutahópa eða menningarbundin málefni. Þrátt fyrir þetta geta vélþýðingar, unnar með sérhæfðum þýðingarvélum eða öðrum gervigreindarlíkönum, auðvitað gagnast á margvíslegan hátt. Til að þýða tal eða texta til einkanota, til dæmis í daglegri notkun fólks sem þarf að glöggva sig á einhverju sem það skilur illa eða ekki á öðrum tungumálum. Til að þýða texta fyrir litla hópa sem gera sér grein fyrir að um vélþýðingu sé að ræða og geta spurst fyrir um hver merkingin eigi að vera ef vafi leikur á því. Og sem hjálpartæki í starfi þýðenda, sem þekkja getu og takmarkanir tækninnar og kunna að nota hana án þess að þýðingin, íslenski textinn, líði fyrir það. Hættan þar, sem vanir þýðendur þekkja og reyna að varast, er að festast í vélþýdda textanum. Ef þeir hafa hann fyrir framan sig áður en þeir þýða sjálfir verður tilhneigingin sú að villurnar eru lagaðar en setningagerðin stendur og yfirbragð þýðingarinnar getur borið keim af málinu sem þýtt er úr. Ráðherra talar ekki um hvort ætlunin sé að láta gervigreind alfarið um þýðingarnar eða hvort ætlunin sé að lækka þýðingarkostnað með því að láta fólk fara yfir úttak úr þýðingarvélum og laga það sem það finnur og er athugavert. Ef 455 milljónir með gervigreind eiga að skila jafn miklu og milljarður án gervigreindartækni vaknar spurning um hversu mikil yfirferð á að fylgja vélþýðingunni. Ekki síst í ljósi þess að um er að ræða heildarkostnað við útgáfu námsefnisins. PISA-prófin sýna að stór hluti nemenda hefur ekki nægilega góðan lesskilning. Þegar það er eitt stærsta vandamálið hlýtur að skipta sérstaklega miklu máli að námsefnið sé á skýrri og læsilegri íslensku og uppbygging texta og orðaval við hæfi lesenda og lagað að þeim. Hér eru kröfurnar aðrar en til þýðinga sem eingöngu er ætlað að hjálpa fólki að glöggva sig á merkingu texta sem skrifaður er á öðru tungumáli. Þýðingar þurfa að vera réttar, auðskiljanlegar, lifandi og þær mega ekki bjóða upp á misskilning. Ástæða er til að ætla að notkun gervigreindar, a.m.k. ef henni er ekki stýrt af færum þýðanda, sé líkleg til að vinna gegn þessu öllu. Góðir þýðendur vita hver bestu verkfærin eru og kunna að nota þau. Hvort sem það eru bestu gervigreindartólin á hverjum tíma, orðabækur og orðasöfn sem gervigreindin hefur mögulega ekki aðgang að, eða önnur tól sem þeir nýta sér. Þeir vita fyrir hvaða lesendahóp þeir eru að vinna og geta miðað málið á þýðingunum við það. Góðir höfundar og öflugir þýðendur eru lykillinn að því að bæta lesskilning. Ef nemendur eiga að fá besta námsefni sem völ er á, eins og ráðherra boðaði á fyrrnefndum kynningarfundi, er of áhættusamt að láta gervigreind um verkið. Við þurfum að treysta færu fólki til starfans og láta það sjálft um að velja verkfærin. Gervigreind þarf að vera verkfæri þýðandans – ekki staðgengill hans. Höfundur er rannsóknarlektor í máltækni við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og sinnir rannsóknum á vélþýðingum og gervigreind. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur PISA-könnun Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun