Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Andri Broddason skrifar 11. september 2026 09:31 Armand Duplantis verður sérstök stjarna mótsins og Noah Lyles verður kynnir vegna meiðsla. Samsett/Getty Nýtt frjálsíþróttamót hefur göngu sína um helgina þar sem tíu milljónir dollara verða í verðlaunafé. Mótið er aðeins fyrir allra bestu íþróttamennina í hverri grein og má búast við gríðarlegu sjónarspili.
The World Athletics Ultimate Championship verður haldið um helgina í fyrsta skipti þar sem aðeins ríkjandi Ólympíumeistarar, heimsmeistarar og meistarar demantamótaraðarinnar fá að keppa í sínum greinum. Til að fylla í greinarnar fá svo þeir íþróttamenn sem eru hæstir á stigalista fyrir hverja grein keppnisrétt þangað til fullt verður í mótið. Einhverjar stjórstjörnur fá þó undantekningu á þessari reglu eins og Norðmaðurinn Jakob Ingebrigtsen sem mun keppa í 1500 metra hlaupi karla þrátt fyrir að standast ekki strangar kröfur. Ekki verður þó keppt í öllum greinum þar sem nokkrar greinar þóttu ekki nógu vinsælar og verður þeim sleppt. Þar á meðal eru kringlukast, kúluvarp og 10 þúsund metra hlaup. Frjálsíþróttastjörnur syngja og kynna á rauðum dregli Mikið verðlaunafé verður í boði og er planið að gera mikið sjónarspil úr mótinu. Daginn áður en keppnin hefst verður rauður dregill fyrir keppendur þar sem þeir mæta í sínu fínasta pússi og haldnir verða blaðamannafundir og myndatökur. Sænska stangastökksstjarnan Armand Duplantis er ein af helstu stjörnum mótsins og samdi sérstakt lag tileinkað mótinu. Hann mun syngja lagið á leikunum og segist hann vera spenntur fyrir nýju móti í frjálsum íþróttum. Bandaríski spretthlauparinn Noah Lyles getur ekki verið með á mótinu vegna meiðsla en hann ætlar ekki að láta sig vanta. Hann mun verða eins konar þáttastjórnandi í sjónvarpinu og mun sjá um að skemmta áhorfendum. Fjölga stórmótum til að halda áhorfendum Þegar Ólympíuleikar eða heimsmeistaramót eru ekki í gangi hafa frjálsar íþróttir ekki fengið mikla athygli. Markmið mótsins er að reyna að bæta það og halda mótið á árum þar sem ekki eru heimsmeistaramót né Ólympíuleikar. Þannig eru fleiri mót sem geta haldið athygli áhorfandans. Ekki eru þó allir sáttir með mótið og hefur grindahlauparinn Karsten Warholm talað um að dagskráin í lok tímabils sé algjör ringulreið. Í viðtali við norska miðilinn VG segir hann að það verði erfitt fyrir frjálsíþróttaheiminn að halda í við þessi nýju verðlaun.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Fleiri fréttir Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira