Neytendur

Skor­dýra­eitur á Pinkids eplum í öskju

Lovísa Arnardóttir skrifar
Eplin eru í svona öskju.
Eplin eru í svona öskju. Aðsend

Bananar ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað PinKids epli í öskjum vegna varnarefnaleyfa sem mældust við innra eftirlit framleiðanda. BiFenthrin er skordýraeitur.

Ástæða innköllunar er að varan getur innihaldið varnarefni (BiFenthrin) sem er skordýraeitur. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Pink Lady
  • Vöruheiti: PinKids
  • Strikamerki: 3700476661534
  • Lotunúmer og best fyrir dagsetning: L261409305/L3505
  • Nettómagn: 550 g
  • Framleiðandi: SARL Mesfruits, Cacaillon, Frakkland
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Bananar ehf., Kornagarður 1, 104 Reykjavík.
  • Dreifing (verslanir):  Verslanir Bónus.

Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga en einnig má skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir gæðastjóri Banana í síma 525 0100 eða í gegnum netfangið thoradogg@bananar.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×