Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Freyja Þórisdóttir skrifar 20. september 2026 22:34 Ölgerðin er meðal dótturfélaga Beru. Vísir/Vilhelm Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, Danól, Gæðabaksturs, Kjarnavara og fleiri vörumerkja, hefur heitið því að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Er skrefið stigið í von um að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni. Frá þessu er greint í tilkynningu sem forstjóri Beru sendi frá sér en þar kemur fram að hún sé svar við því að verkalýðsfélögin VR, LÍV og fagfélögin óskuðu eftir afstöðu fyrirtækisins til verðlagsþróunar. Þau hafi einnig kallað eftir framlagi fyrirtækisins til að ná niður verðbólgu og vöxtum. „Bera tekur stöðuna á vinnumarkaði alvarlega og hyggst leggja sitt af mörkum með því að skuldbinda sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands,“ segir í tilkynningunni en verðbólgumarkmiðið er 2,25 prósent. Útlit sé fyrir að styrking krónunnar að undanförnu muni hafa áhrif til lækkunar á innflutningsvörum Danól og Ölgerðarinnar á næstu dögum. Það muni einnig hafa jákvæð áhrif á verð matarkörfu landsmanna. Bera og dótturfélögin Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur hafi um árabil leitað allra leiða til aukinnar hagræðingar. Tilgangurinn hafi ekki bara verið að bæta arðsemi heldur einnig að geta boðið lægra verð. „Nefna má sem dæmi að hækkanir Ölgerðarinnar, stærsta dótturfyrirtækis Beru, hafa verið undir þróun neysluverðsvísitölu síðustu ár,“ segir í tilkynningunni. Þar segir enn fremur að stjórn og stjórnendur Beru og viðkomandi dótturfélaga vilji gefa þessa sérstöku skuldbindingu nú „í von um að aukinn fyrirsjáanleiki um verðþróun á næstunni auðveldi vinnumarkaðsaðilum jafnt sem stjórnvöldum að taka sínar ákvarðanir.“ Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Formenn verkalýðsfélaganna VR, LÍV og Fagfélögin hafa, með bréfi, óskað eftir afstöðu Beru til verðlagsþróunar og kallað eftir framlagi fyrirtækisins til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Bréfinu hefur verið svarað á eftirfarandi hátt: Bera tekur stöðuna á vinnumarkaði alvarlega og hyggst leggja sitt af mörkum með því að skuldbinda sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Fyrirtækið skuldbindur sig til að gera þetta þrátt fyrir að um áramótin komi til framkvæmda 3,5% launahækkun samkvæmt kjarasamningum. Vill fyrirtækið stíga þetta skref í von um að aðilar vinnumarkaðarins, en ekki síður stjórnvöld, grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni sem tryggi aukinn vinnumarkaðs- og verðstöðugleika á Íslandi. Þá er útlit fyrir að styrking krónunnar að undanförnu muni hafa áhrif til lækkunnar á innflutningsvörum Danól og Ölgerðarinnar á næstu dögum. Mun það einnig hafa jákvæð áhrif á verð matarkörfu landsmanna. Bera og dótturfélögin Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur hafa um árabil leitað allra leiða til aukinnar hagræðingar. Tilgangurinn hefur ekki bara verið að bæta arðsemi heldur einnig að geta boðið lægra verð. Nefna má sem dæmi að hækkanir Ölgerðarinnar, stærsta dótturfyrirtækis Beru, hafa verið undir þróun neysluverðsvísitölu síðustu ár. Stjórn og stjórnendur Beru og viðkomandi dótturfélaga vilja hins vegar gefa þessa sérstöku skuldbindingu nú, í von um að aukinn fyrirsjáanleiki um verðþróun á næstunni auðveldi vinnumarkaðsaðilum, jafnt sem stjórnvöldum að taka sínar ákvarðanir. Ölgerðin (Bera) Verðlag Seðlabankinn Matur Drykkir Mest lesið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Neytendur Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Viðskipti innlent Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Neytendur „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Neytendur Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira
Frá þessu er greint í tilkynningu sem forstjóri Beru sendi frá sér en þar kemur fram að hún sé svar við því að verkalýðsfélögin VR, LÍV og fagfélögin óskuðu eftir afstöðu fyrirtækisins til verðlagsþróunar. Þau hafi einnig kallað eftir framlagi fyrirtækisins til að ná niður verðbólgu og vöxtum. „Bera tekur stöðuna á vinnumarkaði alvarlega og hyggst leggja sitt af mörkum með því að skuldbinda sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands,“ segir í tilkynningunni en verðbólgumarkmiðið er 2,25 prósent. Útlit sé fyrir að styrking krónunnar að undanförnu muni hafa áhrif til lækkunar á innflutningsvörum Danól og Ölgerðarinnar á næstu dögum. Það muni einnig hafa jákvæð áhrif á verð matarkörfu landsmanna. Bera og dótturfélögin Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur hafi um árabil leitað allra leiða til aukinnar hagræðingar. Tilgangurinn hafi ekki bara verið að bæta arðsemi heldur einnig að geta boðið lægra verð. „Nefna má sem dæmi að hækkanir Ölgerðarinnar, stærsta dótturfyrirtækis Beru, hafa verið undir þróun neysluverðsvísitölu síðustu ár,“ segir í tilkynningunni. Þar segir enn fremur að stjórn og stjórnendur Beru og viðkomandi dótturfélaga vilji gefa þessa sérstöku skuldbindingu nú „í von um að aukinn fyrirsjáanleiki um verðþróun á næstunni auðveldi vinnumarkaðsaðilum jafnt sem stjórnvöldum að taka sínar ákvarðanir.“ Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Formenn verkalýðsfélaganna VR, LÍV og Fagfélögin hafa, með bréfi, óskað eftir afstöðu Beru til verðlagsþróunar og kallað eftir framlagi fyrirtækisins til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Bréfinu hefur verið svarað á eftirfarandi hátt: Bera tekur stöðuna á vinnumarkaði alvarlega og hyggst leggja sitt af mörkum með því að skuldbinda sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Fyrirtækið skuldbindur sig til að gera þetta þrátt fyrir að um áramótin komi til framkvæmda 3,5% launahækkun samkvæmt kjarasamningum. Vill fyrirtækið stíga þetta skref í von um að aðilar vinnumarkaðarins, en ekki síður stjórnvöld, grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni sem tryggi aukinn vinnumarkaðs- og verðstöðugleika á Íslandi. Þá er útlit fyrir að styrking krónunnar að undanförnu muni hafa áhrif til lækkunnar á innflutningsvörum Danól og Ölgerðarinnar á næstu dögum. Mun það einnig hafa jákvæð áhrif á verð matarkörfu landsmanna. Bera og dótturfélögin Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur hafa um árabil leitað allra leiða til aukinnar hagræðingar. Tilgangurinn hefur ekki bara verið að bæta arðsemi heldur einnig að geta boðið lægra verð. Nefna má sem dæmi að hækkanir Ölgerðarinnar, stærsta dótturfyrirtækis Beru, hafa verið undir þróun neysluverðsvísitölu síðustu ár. Stjórn og stjórnendur Beru og viðkomandi dótturfélaga vilja hins vegar gefa þessa sérstöku skuldbindingu nú, í von um að aukinn fyrirsjáanleiki um verðþróun á næstunni auðveldi vinnumarkaðsaðilum, jafnt sem stjórnvöldum að taka sínar ákvarðanir.
Formenn verkalýðsfélaganna VR, LÍV og Fagfélögin hafa, með bréfi, óskað eftir afstöðu Beru til verðlagsþróunar og kallað eftir framlagi fyrirtækisins til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Bréfinu hefur verið svarað á eftirfarandi hátt: Bera tekur stöðuna á vinnumarkaði alvarlega og hyggst leggja sitt af mörkum með því að skuldbinda sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara sinna um áramótin, umfram verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Fyrirtækið skuldbindur sig til að gera þetta þrátt fyrir að um áramótin komi til framkvæmda 3,5% launahækkun samkvæmt kjarasamningum. Vill fyrirtækið stíga þetta skref í von um að aðilar vinnumarkaðarins, en ekki síður stjórnvöld, grípi til eigin aðgerða gegn verðbólgunni sem tryggi aukinn vinnumarkaðs- og verðstöðugleika á Íslandi. Þá er útlit fyrir að styrking krónunnar að undanförnu muni hafa áhrif til lækkunnar á innflutningsvörum Danól og Ölgerðarinnar á næstu dögum. Mun það einnig hafa jákvæð áhrif á verð matarkörfu landsmanna. Bera og dótturfélögin Ölgerðin, Danól, Gæðabakstur og Kjarnavörur hafa um árabil leitað allra leiða til aukinnar hagræðingar. Tilgangurinn hefur ekki bara verið að bæta arðsemi heldur einnig að geta boðið lægra verð. Nefna má sem dæmi að hækkanir Ölgerðarinnar, stærsta dótturfyrirtækis Beru, hafa verið undir þróun neysluverðsvísitölu síðustu ár. Stjórn og stjórnendur Beru og viðkomandi dótturfélaga vilja hins vegar gefa þessa sérstöku skuldbindingu nú, í von um að aukinn fyrirsjáanleiki um verðþróun á næstunni auðveldi vinnumarkaðsaðilum, jafnt sem stjórnvöldum að taka sínar ákvarðanir.
Ölgerðin (Bera) Verðlag Seðlabankinn Matur Drykkir Mest lesið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Neytendur Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Viðskipti innlent Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Neytendur „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Neytendur Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira