Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar 13. september 2026 08:30 Fyrir ekki svo löngu fjallaði ég um þau rök Loga Einarssonar ráðherra að reynsla annarra landa sýndi að auglýsingafé RÚV myndi að mestu fara úr landi ef RÚV væri tekið af auglýsingamarkaði og því væri það ekki skynsamlegt. Þegar ég rýndi í gögnin frá þessum löndum þá var niðurstaðan alls ekki svona afdráttarlaus. Í síðustu viku bættist Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV, í hópinn með Loga en það stóð ekki lengi. Frá fullyrðingu til fyrirvara Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður RÚV, birti skoðanagrein á Vísi 9. september síðastliðinn. Í greininni hélt hann því jafnframt fram að ef RÚV færi af auglýsingamarkaði myndi aðeins lítið brot af þeim auglýsingatekjum skila sér til annarra íslenskra fjölmiðla. Þetta er afdrifarík fullyrðing. Ef hún væri rétt útilokar hún nánast þá leið að taka RÚV af auglýsingamarkaði. Þetta eru því mjög mikilvæg grunnrök í umræðunni um RÚV og auglýsingamarkaðinn. Fullyrðingin er líka kunnugleg eins og áður hefur komið fram . Logi Einarsson hefur fært sambærileg rök fyrir áframhaldandi auglýsingasölu RÚV. Í svörum við spurningum blaðamanns Vísis síðar í sömu viku varð tónninn hins vegar annar. Þar sagði Stefán Jón hugsanlegt að stærstur hluti fjárins færi til erlendu tæknifyrirtækjanna en viðurkenndi jafnframt að ekki sé hægt að fullyrða það á einn veg eða annan. Þarna bregður stjórnarformaðurinn sér að mínu mati í gervi Ragnars Reykás. Fyrst er fullyrt að aðeins lítið brot skili sér til íslenskra miðla. Tveimur dögum síðar er niðurstaðan sú að ekki sé hægt að fullyrða hvert auglýsingatekjurnar færu. Ég fagna því að þetta sé nú komið á hreint. Það er ekkert að því að endurmeta afstöðu sína þegar betur er rýnt í gögnin. Stórar ákvarðanir um framtíð íslensks fjölmiðlamarkaðar eiga einmitt að byggjast á gögnum sem liggja fyrir og sanngjarni túlkun á þeim og þá sérstaklega ef gögnin eru veigamikil og skipta miklu máli í ákvarðanatökunni. Sameiginlegi stóri vandinn Ég er sammála stjórnarformanni RÚV um að vaxandi hlutdeild erlendra tæknirisa á íslenskum auglýsingamarkaði sé eitt stærsta viðfangsefni íslensks fjölmiðlamarkaðar í dag. Samkvæmt Hagstofunni námu auglýsingakaup íslenskra aðila hjá erlendum miðlum 14,9 milljörðum króna árið 2024 af alls 29,4 milljörðum. Rétt er að halda því til haga að ekki fór öll fjárhæðin í auglýsingar sem beindust að íslenskum neytendum. Hluti hennar tengdist meðal annars markaðssetningu íslenskrar ferðaþjónustu erlendis. Þess vegna er ekki hægt að líta á alla 14,9 milljarðana sem tekjutap íslenskra fjölmiðla. Umfangið er engu að síður slíkt að stjórnvöld verða að bregðast við. Íslenskir fjölmiðlar fjárfesta í íslensku dagskrárefni og blaðamennsku, styrkja lýðræðislega umræðu, lúta íslenskum lögum og greiða skatta hér á landi. Önnur ríki hafa brugðist við og það fyrir mörgum árum! Fróður maður benti mér á að t.d. Austurríki hefði þegar tekið upp sérstakan skatt á stafrænar auglýsingatekjur á stór alþjóðleg fyrirtæki. Skatturinn tók gildi 1. janúar 2020. Austurríki er ekki eina ríkið sem hefur farið þessa leið ef horft er til landa innan og utan Evrópu. Frakkland, Ítalía, Spánn og fleiri lönd hafa brugðist við og það fyrir nokkrum árum. Við eigum að vera búin að bregðast við og nú þarf að klára málið. Hversu hár ætti skatturinn að vera? Ísland ætti að skoða hærra skatthlutfall en önnur stærri ríki enda er íslenskt málsvæði lítið og fjölmiðlamarkaðurinn viðkvæmur. Öflugir innlendir fjölmiðlar eru forsenda þess að íslensk tunga, menning og lýðræðisleg umræða standi af sér samkeppnina við alþjóðlega tæknirisa. Hugsum stórt þannig að við getum raunverulega tekist á við samkeppnina! Hvar eru íslensku tillögurnar? Í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla sem kynnt var í desember 2025 kemur fram að fjármála- og efnahagsráðuneytið eigi að kanna leiðir nágrannaríkja til að skattleggja alþjóðleg tæknifyrirtæki og skila tillögum vorið 2026. Nú er komið haust og þessar tillögur hafa ekki verið kynntar opinberlega. Það er ekki hægt að bíða lengur. Tími aðgerða er löngu kominn. Höfundur er framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Sýn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Sjá meira
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar