Ein pilla dró Panettiere til dauða Bjarki Sigurðsson skrifar 14. september 2026 12:55 Hayden Panettiere lést fyrir tæpum mánuði síðan. Getty/Angela Weiss Hayden Panettiere leikkona er sögð hafa tekið eina töflu af oxycodone-pillu sem búið var að menga með fentanýl áður en hún lést. Lögregla vinnur nú að því að hafa uppi á manninum sem grunaður er um að hafa selt henni pilluna.
TMZ greinir frá þessu. Panettiere, sem var 36 ára þegar hún lést, var þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heroes og Nashville og fyrir kvikmyndirnar Scream 4 og Scream 6. Hún fannst látin í leiguíbúð í Kaliforníu í Bandaríkjunum 16. ágúst síðastliðinn. Í grein TMZ segir að Panettiere hafi til fjölda ára keypt fíkniefni af sama manni. Sá er talinn hafa selt henni töfluna sem dró hana til dauða. Lögregla reynir nú að bera kennsl á salann á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr ítarlegri eiturefnarannsóknum. Panettiere hafði starfað sem leikkona frá því hún var kornabarn og þannig varið allri ævinni í bransanum. Leikkonan skrifaði um þessa reynslu í ævisögu sinni, This Is Me: A Reckoning, sem kom út fyrr á árinu. Panettiere skrifar þar um það hvernig henni var ýtt áfram sem barni af kröfuharðri móður (sem hún rauf síðar samskiptin við), var hvött til að taka vímuefni af fullorðnu fólki til að eiga betur við álagið, var kynferðislega áreitt af körlum Hollywood, lifði við heimilisofbeldi, glímdi við fæðingarþunglyndi og ánetjaðist vímuefnum. Fentanýl er eitt sterkasta verkjalyfið á markaðnum og er hundrað sinnum sterkara en morfín. Algengt er að dópsalar ytra búi til falsaðar Oxycontin-töflur, sem er vinsælasta oxycodone lyfið, og menga þær með fentanýli. Framleiðslukostnaðurinn verður þannig lægri og líklegra að þeir sem taka töflurnar verði háðir. Hins vegar er efnið það sterkt að þúsundir deyja ár hvert eftir að hafa tekið slíka töflu.
Andlát Hayden Panettiere Fíkn Bandaríkin Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Lífið samstarf Smáralind breytist í tímavél um helgina Lífið samstarf Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Lífið Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Lífið Fleiri fréttir Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Sjá meira