Baldvin setti metið á EM meiddur og er hættur við HM Sindri Sverrisson skrifar 14. september 2026 22:46 Baldvin Þór Magnússon hefur slegið fjölda Íslandsmeta á síðustu árum en þarf nú að taka sér hlé til að jafna sig af meiðslum í hásin. Getty/Sam Mellish Íslandsmethafinn Baldvin Þór Magnússon hefur ekki átt sjö dagana sæla á þessu keppnistímabili og missir af heimsmeistaramótinu í götuhlaupum um næstu helgi.
Baldvin staðfesti þetta við RÚV en hann hefur verið að glíma við hásinarmeiðsli frá því í byrjun júlí. Meiðslin komu í veg fyrir að hann gæti æft af eðlilegri getu í aðdraganda Evrópumótsins í frjálsíþróttum í Birmingham í ágúst en þar náði Baldvin engu að síður 13. sæti í 10.000 metra hlaupi og setti nýtt Íslandsmet á mögnuðum tíma, eða 28:25,67 mínútum. „Þetta hafði alveg frekar mikil áhrif á æfingarnar. Ég þurfti að æfa nóg til að halda mér í góðu formi en þetta hélt mér klárlega frá því að komast í mjög gott form. Ég þurfti að vera leiðinlega skynsamur þessar sex vikur fyrir EM,“ segir Baldvin í samtali við RÚV. Eins og fyrr segir hefur hann nú tekið ákvörðun um að hætta við HM í götuhlaupum, þar sem hann hugðist hlaupa 5 kílómetra hlaup, í Kaupmannahöfn um helgina. Baldvin segir ákvörðunina ekki hafa verið erfiða þar sem meiðslin hafi plagað hann svo lengi. „Sérstaklega þegar þetta er búið að vera að bögga mig í svona margar vikur. Þá var maður alveg kominn með nóg af því að slást í gegnum þetta. Þannig að ég er nógu skynsamur og veit að þetta er eina leiðin til að koma þessu í lag. Til að geta byrjað aftur að æfa venjulega, að æfa af 100% ákefð. Ég sakna þess að gera það,“ segir Baldvin sem segir skýrt langtímamarkmið hjá sér að komast inn á Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Sjá meira