Fúll yfir tapi London: HM í frjálsum fer í fyrsta sinn til Afríku Sindri Sverrisson skrifar 15. september 2026 11:31 Keníumenn unnu samtals til sjö gullverðlauna á HM í fyrra enda lengi haft yfirburði í lengri hlaupum. Beatrice Chebet varð heimsmeistari í 5.000 og 10.000 metra hlaupi. Getty/Cameron Spencer Ein fremsta frjálsíþróttaþjóð heims, Kenía, fær að halda HM í frjálsum íþróttum árið 2029 eftir að Nairobi hafði betur í baráttu við London, Róm og München um að halda mótið. München verður svo gestgjafi á HM 2031.
Mótið eftir þrjú ár verður fyrsta heimsmeistaramót fullorðinna sem haldið er í Afríku. Ljóst er að ekki eru allir par sáttir og Matt Lawton, íþróttafréttastjóri breska blaðsins The Times, skrifaði á X: „Þetta þýðir þrjú heimsmeistaramót í röð utan Evrópu. Ótrúleg ákvörðun hjá Alþjóða frjálsíþróttasambandinu.“ Aðspurður í ummælum hvað væri svona ótrúlegt við ákvörðunina, svaraði Lawton: „Þrjú heimsmeistaramót í röð utan Evrópu. Gríðarleg lyfjamisnotkun í Kenía. Ég hefði viljað sjá meiri tíma varið í það og að Afríka fengi mótið 2031 en Evrópa 2029.“ BREAKING: Hearing London has lost bid to host the 2029 World Athletics Championships. Has gone to Nairobi. Means three consecutive champs away from Europe. Incredible decision by World Athletics.— Matt Lawton (@Lawton_Times) September 15, 2026 Sebastian Coe, forseti Alþjóða frjálsíþróttasambandsins, segir umsókn Kenía hafa verið „hrífandi og tilfinningaþrungna.“ „Við vorum svo lukkuleg að fá fjórar framúrskarandi umsóknir vegna HM 2029 og 2031 svo þetta var ekki auðveld ákvörðun fyrir nefndina. Með ákvörðun okkar í dag höldum við áfram að stefna að útbreiðslu frjálsíþrótta um allan heim með því að næstu þrír gestgjafar verði í Asíu, Afríku og Evrópu,“ sagði Coe en næsta HM verður árið 2027 í Peking. Aðeins níu ár eru síðan að London hélt HM síðast, eða árið 2017. Þjóðverjar héldu síðast HM árið 2009 þegar mótið var haldið í Berlín, og því líða 22 ár þar til mótið fer svo aftur fram í Þýskalandi, í München árið 2031. Eins og fyrr segir verður mótið 2029 það fyrsta sem haldið er í Afríku en það mun fara fram á Kasarani-leikvanginum. Þar standa yfir miklar endurbætur áður en þar verður spilað á Afríkumótinu í fótbolta á næsta ári. Keníumenn urðu í 2. sæti yfir verðlaunahafa á HM í fyrra þegar þeir unnu sjö gullverðlaun og alls ellefu verðlaun.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjá meira