Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Kjartan Kjartansson skrifar 16. september 2026 12:42 Bifreiðarnar tvær eftir áreksturinn á Fjarðarheiði 3. desember árið 2025. Rannsóknarnefnd samgönguslysa Ökumaður bifreiðar sem fór yfir á gagnstæðan vegarhelming og lenti framan á öðrum bíl á Fjarðarheiði í desember er talinn hafa ekið of hratt miðað við aðstæður. Karlmaður á níræðisaldri í bílnum sem ekið var framan á lést. Banaslysið átti sér stað á Fjarðarheiði um miðjan dag 3. desember. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem var birt í dag kemur fram að erlendur ferðamaður sem ók Toyota RAV4-jepplingi frá bílaleigu austur Seyðisfjarðarveg hafi misst stjórn á bifreiðinni í hálku í vinstri beygju. Þegar hann náði stjórninni aftur var hann kominn yfir á gagnstæðan vegarhelmingi og lenti framan á Lexus-bifreið sem var ekið til vesturs. Sá látni var 87 ára gamall íslenskur karlmaður frá Seyðisfirði sem var farþegi í aftursæti Lexus-bifreiðarinnar. Hann hlaut fjöláverka sem drógu hann til dauða. Rannsóknarnefndin telur hálku hafa verið meginorsök slyssins. Erlendi ferðamaðurinn hafi einnig ekið of hratt miðað við aðstæður. Hámarkshraði á Seyðisfjarðarvegi var níutíu kílómetrar á klukkustund en leiðbeinandi hámark sextíu kílómetrar á klukkustund í beygjunni þar sem slysið varð. Snjór og hálka var á veginum og grip því skert. Rannsókn á bifreiðunum tveimur leiddi í ljós að Toyota-bifreiðinni var ekið á 59 kílómetra hraða á klukkustund fimm sekúndum fyrir áreksturinn og Lexus-bifreiðinni á 48 kílómetra hraða á klukkustund. Þegar bifreiðarnar rákust saman var Toyota-bíllinn á 34 km/klst en Lexusinn á 28 km/klst. Enginn annar slasaðist alvarlega Erlendi ferðamaðurinn hafði verið með ökuréttindi í fjögur ár þegar slysið átti sér stað. Hann sagðist hafa reynslu af því að aka í snjó og hálku á ferðalögum sínum. Auk mannsins sem lést voru ökumaður og tveir farþegar í Lexus-bifreiðinni. Farþegi í hinu aftursætinu var lagður inn á sjúkrahús með áverka en ökumaðurinn og farþegi í framsæti slösuðust ekki alvarlega. Ökumaður og þrír farþegar í Toyota-bifreiðinni slösuðust ekki alvarlega. Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa. Samgönguslys Múlaþing Bílar Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Banaslysið átti sér stað á Fjarðarheiði um miðjan dag 3. desember. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem var birt í dag kemur fram að erlendur ferðamaður sem ók Toyota RAV4-jepplingi frá bílaleigu austur Seyðisfjarðarveg hafi misst stjórn á bifreiðinni í hálku í vinstri beygju. Þegar hann náði stjórninni aftur var hann kominn yfir á gagnstæðan vegarhelmingi og lenti framan á Lexus-bifreið sem var ekið til vesturs. Sá látni var 87 ára gamall íslenskur karlmaður frá Seyðisfirði sem var farþegi í aftursæti Lexus-bifreiðarinnar. Hann hlaut fjöláverka sem drógu hann til dauða. Rannsóknarnefndin telur hálku hafa verið meginorsök slyssins. Erlendi ferðamaðurinn hafi einnig ekið of hratt miðað við aðstæður. Hámarkshraði á Seyðisfjarðarvegi var níutíu kílómetrar á klukkustund en leiðbeinandi hámark sextíu kílómetrar á klukkustund í beygjunni þar sem slysið varð. Snjór og hálka var á veginum og grip því skert. Rannsókn á bifreiðunum tveimur leiddi í ljós að Toyota-bifreiðinni var ekið á 59 kílómetra hraða á klukkustund fimm sekúndum fyrir áreksturinn og Lexus-bifreiðinni á 48 kílómetra hraða á klukkustund. Þegar bifreiðarnar rákust saman var Toyota-bíllinn á 34 km/klst en Lexusinn á 28 km/klst. Enginn annar slasaðist alvarlega Erlendi ferðamaðurinn hafði verið með ökuréttindi í fjögur ár þegar slysið átti sér stað. Hann sagðist hafa reynslu af því að aka í snjó og hálku á ferðalögum sínum. Auk mannsins sem lést voru ökumaður og tveir farþegar í Lexus-bifreiðinni. Farþegi í hinu aftursætinu var lagður inn á sjúkrahús með áverka en ökumaðurinn og farþegi í framsæti slösuðust ekki alvarlega. Ökumaður og þrír farþegar í Toyota-bifreiðinni slösuðust ekki alvarlega. Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.
Samgönguslys Múlaþing Bílar Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira