Sport

Bikarar í boði og Steindi fer tíu hringi í Bakgarðshlaupinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Besta18spet
vísir/Anton og Eyþór

Það er rosaleg helgi fram undan í íþróttunum. Bikarar á loft, frábærir leikir í enska og svo Bakgarðshlaup.

Bikarkeppni neðri deilda, Gatorade-bikarinn, fer fram á Laugardalsvelli í kvöld og morgun er sjálfur úrslitaleikurinn um laust sæti í Lengjudeildinni.

Þróttur og Fylkir mætast í þeim áhugaverða leik. Sigurvegarinn fylgir Aftureldingu upp í Bestu deildina.

Víkingur getur einmitt tryggt sér titilinn í Bestu deildinni á KR-vellinum á morgun. Það verða læti þar.

Bakgarðshlaup hefst í Heiðmörk í fyrramálið og verður venju samkvæmt í beinni á Vísi. Steindi Jr. er áhugaverðasti keppandinn og menn eru misbjartsýnir á hans gengi. Einn hefur þó tröllatrú á Steinda og spáir því að hann fari tíu hringi.

Enski boltinn fer aftur af stað í kvöld með leik Brentford og Chelsea. Arsenal heimsækir Brighton á morgun og nýr stjóri Liverpool, Andoni Iraola, fer á fornar slóðir á sunnudag. Man. Utd sækir Fulham heim og er strax pressa á United-liðinu.

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×