Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Bjarki Sigurðsson skrifar 19. september 2026 14:05 Atvikið náðist á myndband. NBC Steven Kolb, forstjóri og formaður CFDA, samtaka tískuhönnuða í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér eftir að hann beitti mótmælendur ofbeldi á tískusýningu fyrr í vikunni. Atvikið náðist á myndband og hefur hann beðist afsökunar á framferði sínu.
Á tískusýningu COS á sunnudag í New York mættu mótmælendur frá dýraverndunarsamtökunum PETA og létu öllum illum látum. Markmiðið var að vekja athygli á notkun ullar í tískuheiminum. Kolb tók málin í eigin hendur og greip um mótmælendurna líkt og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan. Hann hélt einum föstum og tók fyrir andlitið á öðrum til að koma í veg fyrir að hann héldi áfram að trufla sýninguna. Í kjölfarið fór Kolb í leyfi frá störfum og í gær tilkynnti hann að hann væri búinn að segja upp störfum eftir tuttugu ára starf. Í tilkynningu sem Page Six fjallar um segir að hann telji stundina rétta bæði fyrir sig og samtökin til að hefja nýjan kafla. Hann hafði áður beðist afsökunar á atvikinu í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagðist bera fulla ábyrgð á því sem gerðist. „Það sem ég er stoltastur af eru áhrifin sem við höfðum á bandaríska hönnuði, studdum sköpun og hjálpuðum fyrirtækjum að vaxa,“ hefur Page Six eftir honum varðandi uppsögnina. Í annarri yfirlýsingu frá stjórn CFDA segir að Kolb hafi staðið sig einstaklega vel sem forstjóri og formaður. Hans verði sárt saknað. Mótmælendurnir hafa sagst ætla að leggja fram kæru vegna atviksins. Í yfirlýsingu frá eigendum COS segir að rannsakað sé hvernig atvikið gat átt sér stað.
Tíska og hönnun Bandaríkin Dýraheilbrigði Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Kósýkvöld hjá Vogue: Jólavörur og góð kaup Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“