Viðskipti innlent

Breytt fyrir­komu­lag og samskiptastjórinn kveður

Árni Sæberg skrifar
Breki Logason hefur gengt stöðu samskiptastjóra Orkuveitunnar síðastliðin sex ár.
Breki Logason hefur gengt stöðu samskiptastjóra Orkuveitunnar síðastliðin sex ár. Orkuveitan

Breki Logason, samskiptastjóri Orkuveitunnar, og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, hafa samið um starfslok þess fyrrnefnda vegna fyrirhugaðra breytinga á samskiptamálum fyrirtækisins.

Frá þessu greinir Breki í færslu á Facebook. Hann hafi hafið störf hjá Orkuveitunni fyrir rúmum sex árum og nú sé komið að kaflaskilum.

„Á þessum árum höfum við byggt upp öfluga miðlæga samskipta- og markaðsdeild til þess að mæta ólíkum þörfum fyrirtækjanna okkar. Ég hef haft mikla trú á þeirri nálgun og er stoltur af því sem við höfum byggt upp saman og þeim árangri sem við höfum náð. Nú verða gerðar breytingar á fyrirkomulagi samskiptamála og nýr kafli tekur við hjá Orkuveitunni. Við Sævar Freyr forstjóri höfum því samið um mín starfslok,“ segir hann meðal annars.

Hann segir að þrátt fyrir starfslok hans hafi hann verið beðinn um að sinna áfram tilteknum verkefnum á sviði samskiptamála fyrir Orkuveituna á næstu misserum. Það gleðji hann og hann hlakki til að halda þannig áfram að leggja sitt af mörkum.

„Svo tekur við næsta áskorun. Hausinn er eins og venjulega stútfullur af misgáfulegum hugmyndum sem á einhverjum tímapunkti eru samt þær bestu í heimi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×