Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar 21. september 2026 12:00 Það gerist ekki oft að leiðtogar fremstu gervigreindarfyrirtækja heims, virtir vísindamenn og stjórnmálamenn frá hægri og vinstri stígi fram nánast samtímis og segi: Við þurfum að hægja á. En þetta hefur gerst síðustu daga. Dario Amodei, forstjóri Anthropic, hefur kallað eftir því að hægt verði á þróun öflugustu gervigreindarlíkana heims. Elon Musk og Sam Altman hjá OpenAI hafa tekið undir þau orð, ekki vegna þess að þeir hafi misst trú á tækifærunum sem felast í tækninni, heldur vegna þess að henni fleygir svo hratt fram að öryggisráðstafanir, regluverk og alþjóðlegt samstarf eiga erfitt með að halda í við þróunina. Á sama tíma hafa sérfræðingar sem starfa í fremstu víglínu hringt viðvörunarbjöllum. Jacob Coxon, sem áður starfaði hjá OpenAI, sagði nýlega upp starfi sínu hjá Anthropic og varaði við afleiðingum alþjóðlegs kapphlaups um að þróa gervigreind sem gæti farið fram úr mannlegri getu og orðið sífellt færari um að bæta sjálfa sig. Nóbelsverðlaunahafinn Geoffrey Hinton, einn af frumkvöðlum nútímagervigreindar, hefur um nokkurt skeið varað við þróuninni og kallað eftir ábyrgum og samstilltum viðbrögðum stjórnvalda. Hér er ekki lengur aðeins um framtíðarspádóma að ræða. Gervigreindarkerfi eru þegar farin að aðstoða við þróun næstu kynslóðar slíkra kerfa. Forsvarsmenn Anthropic segja til dæmis þeirra eigin líkön nú þegar leggja umtalsvert af mörkum til rannsókna og þróunar innan fyrirtækisins. Því vaknar mikilvæg spurning: Hvað gerist þegar tæknin tekur sífellt meiri þátt í að þróa sjálfa sig? Kannski segir það þó mest um stöðuna hversu óvenjuleg bandalög hafa myndast. Steve Bannon, þekktur ráðgjafi repúblikana á hægri vængnum, og Bernie Sanders, öldungadeildarþingmaður á vinstri vængnum, eru ekki sammála um margt. En fyrir fáum dögum stigu þeir báðir á svið á sama fundi í Washington og kölluðu eftir ákveðnari viðbrögðum stjórnvalda. Þótt þá greini á um lausnir eru þeir sammála um eitt grundvallaratriði: Þróun tækni sem getur umbreytt samfélögum okkar má ekki ráðast eingöngu af kapphlaupi milli fyrirtækja og ríkja. Manneskjan verður að vera í fyrirrúmi og stjórnvöld þurfa að setja gervigreindinni skynsamleg vegrið. Þegar leiðtogar gervigreindarfyrirtækjanna sjálfra kalla eftir því að hægt verði á, vísindamenn segja upp störfum til að vara okkur við og pólitískir andstæðingar á borð við Sanders og Bannon finna sameiginlegan flöt – þá eigum við að hlusta. Gervigreind getur orðið eitt öflugasta tæki sem mannkynið hefur skapað. Hún getur hraðað vísindalegum framförum, bætt heilbrigðisþjónustu og menntun, aukið framleiðni og hjálpað okkur að takast á við stærstu áskoranir samtímans. En tækifærin og ábyrgðin þurfa að haldast í hendur. Við þurfum að tryggja að tæknin þjóni mannkyninu – en ekki öfugt. Við eigum ekki að standa á hliðarlínunni í þessari byltingu. Við eigum að nýta gervigreindina af metnaði – og taka jafnframt virkan þátt í að móta þær leikreglur sem henni þurfa að fylgja. Er sagan að endurtaka sig? Einn þeirra sem hefur verið áberandi í umræðunni síðustu daga er Tristan Harris, stofnandi Center for Humane Technology (Miðstöð mannvænlegrar tækni). Margir þekkja Tristan úr heimildamyndinni The Social Dilemma. Fyrir rúmum áratug hóf hann að vara við stafrænu viðskiptamódeli samfélagsmiðla sem gerði athygli okkar að söluvöru. Þá þóttu mörgum viðvaranirnar ýktar. Í dag vitum við betur. Samfélagsmiðlar hafa vissulega fært okkur stórkostleg tækifæri til samskipta og þekkingarmiðlunar. En við sjáum líka skuggahliðarnar: Neikvæð áhrif á athygli og líðan, ekki síst ungs fólks, aukna skautun og stafrænt umhverfi sem gjarnan verðlaunar reiði og öfgar umfram yfirvegun og samtal. Tæknin sem átti að tengja okkur hvert við annað hefur jafnframt grafið undan friðinum innra með okkur og einnig friðinum manna á milli. Nú segir Tristan að við eigum á hættu að endurtaka sömu mistök – nema að þessu sinni með margfalt öflugri tækni. Hann hvetur stjórnvöld, fyrirtæki og samfélög til að taka viðvörunarmerkin í kringum gervigreind alvarlega. Þess vegna fagna ég því að Tristan Harris er væntanlegur til Íslands í október, þegar fjörutíu ár verða liðin frá leiðtogafundinum í Höfða. Hann mun taka þátt í umræðum um þær áskoranir sem blasa við okkur nú – ekki til að segja okkur að óttast framtíðina, heldur til að hjálpa okkur að ræða hvernig við viljum móta hana. Ábyrgðin er okkar Gervigreind er ekki aðeins tæknilegt viðfangsefni. Hún snýst um efnahagsmál, menntamál, öryggismál og lýðræði – og umfram allt framtíð okkar og mannkynsins alls. Hvernig tryggjum við að börnin okkar læri áfram að hugsa sjálf þegar vélar geta svarað nánast hvaða spurningu sem er? Hvernig stöndum við vörð um athygli þeirra og líðan? Hvernig varðveitum við traust þegar sífellt erfiðara verður að greina hvað er raunverulegt og hvað ekki? Og hvernig undirbúum við menntakerfið og vinnumarkaðinn fyrir breytingar sem kunna að verða hraðari og afdrifaríkari en við höfum áður upplifað? Á alþjóðavettvangi blasir við enn stærri spurning. Við lifum nú þegar í heimi vaxandi stríðsátaka, aukinnar spennu og endurnýjaðrar kjarnorkuógnar. Hvernig komum við í veg fyrir að kapphlaup milli stórvelda um öflugri gervigreind verði nýtt vígbúnaðarkapphlaup – þar sem ríki telja sig ekki geta hægt á af ótta við að einhver annar komist fram úr? Þarna snertast tæknin og friðurinn. Við þurfum ekki að velja á milli nýsköpunar og ábyrgðar. Við þurfum hvort tveggja. Við þurfum ekki minni metnað, heldur meiri visku. Við þurfum ekki að stöðva framfarir, heldur hafa hugrekki til að ákveða hvert við viljum að þær leiði okkur. Tækninni mun áfram fleygja fram. Stóra spurningin er hvort viska okkar, ábyrgð og geta til samstarfs haldi í við hana. Því framtíðin má ekki einfaldlega ráðast af því hvað tæknin getur gert. Við verðum sjálf að ákveða hvað við viljum að hún geri – og í þágu hverra. Höfundur er forseti Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Tómasdóttir Gervigreind Forseti Íslands Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun