Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Kjartan Kjartansson skrifar 22. september 2026 14:28 Ásakanir um kosningasvik gætu gert Vinstriflokki Nooshi Dadgostar erfiðara um vik að mynda ríkisstjórn með jafnaðarmönnum. Vísir/EPA Þingmaður Vinstriflokksins í Svíþjóð sem virðist hafa notið góðs af kosningasvindli segist ætla í leyfi á meðan lögregla rannsakar málið. Hann segist ekki hafa komið nálægt svindli og engar upplýsingar hafa enn bendlað hann persónulega við það.
Sænsk yfirvöld rannsaka nú kæru vegna þingkosninganna sem fóru fram á sunnudag fyrir rúmri viku. Kjósendur í Dölunum í Norður-Svíþjóð eru sagðir hafa fengið greitt fyrir að greiða Mohamed Abdukardir Ali, frambjóðanda Vinstriflokksins, atkvæði. Maria Forsberg, framkvæmdastjóri Vinstriflokksins, greindi frá því í dag að Ali færi í leyfi og tæki ekki sæti á þingi þegar það kemur saman. Flokkurinn tæki málinu grafalvarlega og ætlaði sér að aðstoða lögreglu við rannsóknina. Ásakanirnar komu fyrst fram í umfjöllun blaðanna Aftonbladet og Dagens nyheter. Lögregla í Bergslagen sem sögð hafa fengið ábendingu um einstakling sem æki um með kjörseðla þar sem búið var að merkja við nafn Ali. Einnig hefði sést til einstaklinga sem var ekið í bílnum og reiðufé tekið út úr hraðbönkum. Síðarnefnda blaðið segir að Ali hafi verið lítt þekktur þegar hann náði kjöri á sænska þingið í síðustu viku. Hann hafi aðeins fengið sænskan ríkisborgararétt í febrúar og hafi átt í fjárhagskröggum. Þingsætið vann hann í krafti persónukjörs. Vill að vinstrimenn standi með Ali Ali harðneitar sök og fullyrðir að hvorki lögregla né yfirvöld hafi sett sig í samband við sig. Lars Ohly, fyrrverandi leiðtogi Vinstriflokksins, hvatti flokksmenn til þess að standa með Ali og að hrapa ekki að ályktunum um hvað gekk á í kjördæminu. „Maður ætti ekki að ganga út frá því að glæpur hafi verið framinn. Það gæti verið eitthvað sem fólk sem hefur horn í síðu Vinstriflokksins dregur fram.“ Vinstriflokkurinn hreinsaði framboðslista sína af nokkrum fjölda frambjóðenda vikurnar fyrir kjördag. Sumir þeirra höfðu lofað Vladímír Pútín, forseta Rússlands, og Hamas-samtökin í Palestínu.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sjá meira