Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Andri Broddason skrifar 23. september 2026 10:30 Federico Higuain hefur verið látinn fara frá MLS-liðinu Columbus Crew Andrew Katsampes/Getty Images Federico Higuain, bróðir Gonzalo Higuain hefur verið rekinn frá MLS-félaginu Columbus Crew eftir að hafa sagt við kvenmannsdómara að fótbolti væri íþrótt fyrir karlmenn. Hann starfaði sem þjálfari varaliðsins hjá félaginu.
Þegar atvikið gerðist var hann rekinn af velli og fékk tveggja leikja bann. Nú þarf hann ekki að hafa áhyggjur af leikbanninu þar sem hann starfar ekki lengur hjá Columbus Crew. Hann endar því langa dvöl sína hjá félaginu en hann var leikmaður þar í átta ár áður en hann varð þjálfari. BBC Sport greinir frá því að dómarasamtökum í Bandaríkjunum finnist bannið ekki nóg og að fá aðeins tveggja leikja bann fyrir þetta sé of lítið. Samtökin hafi birt færslu þar sem Higuain er ekki nefndur að nafni en atvikinu er lýst vel og óumdeilanlegt að verið sé að ræða um Higuain. „Karlkyns þjálfari beitti kvenkyns dómara líkamlegu ofbeldi og kynjamismunun. Hann kreisti höndina hennar og neitaði að sleppa eftir að hafa verið beðinn um það þrisvar. Eftir það fylgdu niðrandi athugasemdir um kyn dómarans.“ Samkvæmt færslu dómarasamtakana hafi Higuain sagt: „Ekki gleyma, þetta er íþrótt fyrir karlmenn.“ Færslan frá dómarasamtökunum endar á því að leggja áherslu á hvað hlutverk kvenna er mikilvægt fyrir íþróttina. „Konur gera öll stig leiksins betri. Þær ættu ekki að þola ógnun og niðrandi athugasemdir til þess að sanna það. Kvenkyns dómararnir [Í MLS-deildinni] hafa sannað sig á heimssviðinu og eiga þær skilið sömu virðingu og örugga vinnuumhverfi og aðrir dómarar njóta.“ Framkvæmdastjóri Columbus Crew tók málin í sínar eigin hendur og rak Higuain þar sem hann uppfyllti ekki kröfur sem félagið setur á þjálfara. Það væri í hag félagsins að Higuain myndi ekki starfa lengur hjá félaginu.
Fótbolti Bandaríski fótboltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira