Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson og Pétur H. Halldórsson skrifa 23. september 2026 15:03 Í nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 er lagt til að endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna við íbúðarhúsnæði lækki úr 35% í 20%. Samkvæmt frumvarpinu á breytingin að skila ríkissjóði um 3,6 milljörðum króna í auknar tekjur. Hér er því um beina skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu og viðhaldi að ræða. Í nýlegum ummælum fjármálaráðherra er endurgreiðslan kölluð sérstök „ívilnun“ og hluti af „gatasigti“ virðisaukaskattskerfisins. Sú lýsing gefur ranga mynd af uppruna og tilgangi kerfisins. Endurgreiðslan, sem kveðið er á um í 42. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, er hvorki ríkisstyrkur né sértæk ívilnun til byggingariðnaðarins. Hún hefur verið hluti af virðisaukaskattskerfinu frá upphafi og var komið á til að draga úr þeirri hækkun byggingarkostnaðar sem upptaka virðisaukaskatts hafði í för með sér. Alvarleg niðursveifla í byggingariðnaði Fyrirhuguð skattahækkun kemur á sérstaklega slæmum tíma. Atvinnuleysi í byggingariðnaði og mannvirkjagerð fer vaxandi og íbúðum í virkri uppbyggingu hefur fækkað. Á fyrri hluta ársins voru gefin út byggingarleyfi fyrir 56 nýjum íbúðum, samanborið við 77 á sama tíma í fyrra og 100–120 fyrir fáeinum árum. Á sama tíma er mikið af óseldum íbúðum á markaði og stýrivextir standa í 8%. Byggingariðnaðurinn hefur sögulega sveiflast meira en hagkerfið í heild og samdráttur í greininni hefur áhrif á fjölda verktaka, undirverktaka og iðnaðarmanna. Endurgreiðslan hefur verið hluti af kerfinu frá upphafi Endurgreiðslan var aldrei hugsuð sem tímabundið örvunartæki eða sérstök aðstoð við byggingariðnaðinn heldur til að draga úr hækkun byggingarkostnaðar. Þegar virðisaukaskattur var tekinn upp árið 1988 lagðist skattur á vinnu iðnaðarmanna á byggingarstað sem áður hafði verið undanþegin söluskatti. Áætlað var að breytingin myndi ein og sér hækka byggingarkostnað um 5–7%. Því var strax komið á endurgreiðslu til að vega gegn þeirri hækkun. Frá upphafi og til ársins 1996 var virðisaukaskatturinn endurgreiddur að fullu. Hlutfallið var síðar lækkað, meðal annars vegna tekjuþarfa ríkissjóðs. Í kjölfar fjármálakreppunnar var það aftur hækkað í 100% árið 2009 með átakinu „Allir vinna“ til að örva framkvæmdir og draga úr svartri atvinnustarfsemi. Í hvert sinn sem hlutfallið hefur verið lækkað hefur það verið gert til að auka tekjur ríkissjóðs tímabundið eða bregðast við ytri aðstæðum, aldrei vegna þess að grunnforsendan, að VSK á vinnuþætti húsbygginga eigi að endurgreiða, hafi verið dregin í efa eins og nú hefur verið gert. Aukinn hvati til svartrar atvinnustarfsemi Lækkunin hefur einnig aðrar afleiðingar. Þegar lögleg og skattlögð þjónusta iðnaðarmanna verður dýrari eykst hvati til svartrar atvinnustarfsemi. Þá tapar ríkissjóður ekki aðeins virðisaukaskatti heldur einnig tekjum af launatengdum gjöldum og öðrum sköttum og um leið veikist neytendavernd sem fylgir viðskiptum við löglega starfandi iðnaðarmenn og fyrirtæki. Stjórnvöld hafa sjálf ítrekað nýtt endurgreiðslukerfið í þveröfuga átt til að sporna gegn þessu, bæði í „Allir vinna" átakinu 2009 og aftur í heimsfaraldrinum, með sama rökstuðningi og við mælum fyrir núna. Ríkið stefnir í öfuga átt Nokkur sveitarfélög hafa að undanförnu tekið jákvæð skref til að lækka kostnað við húsnæðisuppbyggingu, meðal annars með endurskoðun byggingarréttargjalda og gatnagerðargjalda. Þetta er ekki algilt, enda standa sveitarfélög misvel að þessum málum, en þar sem þetta er gert er um að ræða ábyrga viðleitni til að bregðast við þeirri niðursveiflu sem nú gengur yfir greinina. Það skýtur því skökku við að ríkið stefni á sama tíma í þveröfuga átt. Þar sem sveitarfélög eru að leita leiða til að lækka kostnað við húsnæðisuppbyggingu ætti ríkið að minnsta kosti ekki að vinna gegn þeirri viðleitni með eigin skattahækkun.Ósamræmi í stefnunni Ekki er hægt að kalla eftir ódýrari íbúðum og auknu framboði með annarri hendinni og hækka síðan skattbyrði á byggingu þeirra með hinni. Meistaradeild Samtaka iðnaðarins skorar á stjórnvöld að falla frá fyrirhugaðri lækkun endurgreiðsluhlutfallsins úr 35% í 20% og hækka hlutfallið þess í stað. Það myndi lækka kostnað við húsnæðisframkvæmdir, styðja við uppbyggingu, draga úr svartri atvinnustarfsemi og efla neytendavernd. Í miðri húsnæðisáskorun Íslands eigum við að leita leiða til að lækka byggingarkostnað – ekki hækka hann. Jón Sigurðsson er formaður Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins og Pétur H. Halldórsson er varaformaður Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Byggingariðnaður Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun