Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt Aron Guðmundsson skrifar 25. september 2026 09:31 Heimir þakkar stuðningsmönnum Írlands eftir leikinn í gær Vísir/Getty Eamon Dunphy, fyrrverandi landsliðsmaður Írlands, hefur enn og aftur kallað eftir því að Heimir Hallgrímsson verði rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Írlands.
Írar töpuðu 1-0 á útivelli gegn Kósovó í fyrsta leik liðanna í Þjóðadeild UEFA í gærkvöldi. Írar áttu erfitt uppdráttar í leiknum og féll frammistaða liðsins illa í kramið hjá Dunphy. „Heimir Hallgrímsson hefur verið þarna of lengi,“ segir Dunphy, eindreginn andstæðingur Heimis og fyrrverandi landsliðsmaður Írlands í pistli á vef Irish Mirror. „Írland þarf stjóra sem skilur írskan fótbolta. Einhvern sem skilur enskan fótbolta. Einhvern sem skilur hvers konar leikmenn við höfum og hvernig á að setja þá saman sem lið. Þetta síðasta orð er mikilvægt. Lið.“ Dunphy var óánægður með margt í leik Írlands gegn Kósovó á útivelli í gær, þó helst sóknarleik liðsins. „Þegar maður horfði á þetta í kvöld hefði maður haldið að fótbolti hefði nýlega verið kynntur til sögunnar í landinu. Af íslenskum tannlækni.“ Staðreyndin er hins vegar sú að undir stjórn Heimis var Írland hársbreidd frá því að komast á HM síðasta sumar og hafði liðið fyrir leik gærkvöldsins farið í gegnum átta leiki án þess að tapa í venjulegum leiktíma. Dunphy er hins vegar ekki seldur og vill breytingar. Hann hefur í raun aldrei verið hrifinn af Heimi og hefur ítrekað kallað eftir því að hann verði látinn fara og gert mikið af því að kalla hann tannlækninn en ekki fótboltaþjálfarann Heimi. Írar mæta næst landsliði Ísrael sem hafði stolið sviðsljósinu fyrir leik liðsins í gær. „Ég vorkenni leikmönnunum. Þeir eiga nú fram undan erfiðan og streituvaldandi leik á sunnudag, eftir að hafa tapað fyrir liði Kósóvó sem Írland hafði eytt mestum hluta kvöldsins í að reyna að halda í skefjum. Það verður að fara fram greining á þessu. Ekki bara önnur umræða um einstaka leikmenn. Ekki önnur umræða um hvort einn miðjumaður eigi að byrja í stað annars. Stærri spurningin er stjórinn. Hann hefur verið þarna of lengi. Írland hefur náð nýjum lægðum og einhver verður að axla ábyrgð á því.“
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira